Crouch: Ég varð að fara frá Liverpool 14. júlí 2008 15:15 NordcPhotos/GettyImages
Framherjinn Peter Crouch segist hafa yfirgefið Liverpool með söknuð í hjarta en ætlar sér stóra hluti undir stjórn Harry Redknapp hjá Portsmouth. Crouch segist hafa gert sér grein fyrir að hann fengi ekki að spila hvern einasta leik þegar hann fór til Liverpool á sínum tíma, en hann hafi einfaldlega verið orðinn þreyttur á að sitja á bekknum. "Ég vissi að menn eins og Steven Gerrard, Fernando Torres og Jamie Carragher væru alltaf fyrstir á blað hjá Benitez knattspyrnustjóra en að hinir mennirnir í liðinu þyrftu að berjast um lausu sætin í hverri viku. Mér fannst ég standa mig þokkalega þegar ég fékk að spila en að lokum fékk ég bara allt of lítið að spila. Rafa var með sínar hugmyndir og ég mínar. Ég vil bara fá að spila því ég er að nálgast hátind ferilsins. Ég ætla ekki að standa hérna og segja að við komumst á topp fjögur, en ef eitthvað lið á möguleika á því - er það Portsmouth" sagði Crouch í samtali við Sun. Harry Redknapp þekkir manna best til Crouch, því þegar hann gekk frá 11 milljón punda kaupum á framherjanum á dögunum var það í þriðja skipti sem hann kaupir hann. Redknapp fékk Crouch til Portsmouth á sínum tíma og keypti hann svo síðar til Southampton þegar hann tók við þar sem stjóri. "Crouch var orðinn leiður á að fá ekki að spila þó hann væri hjá stórliði eins og Liverpool. Ég fékk hann til Portsmouth árið 2001 og svo keypti ég hann til Southampton. Ári eftir það var hann kominn í enska landsliðið. Hann er enn betri leikmaður núna og sjálfstraust hans er í botni," sagði Redknapp. Crouch er nú að leita sér að húsnæði í Portsmouth, en það eru ekki góð tíðindi fyrir framherjann John Utaka, því hann leigir íbúð sem Crouch á í borginni frá því hann lék með liðinu. "Ætli ég verði ekki að sparka honum út - hann er á leiðinni á götuna," sagði Crouch í léttum tón.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Frakkland - England | Tárin þerruð og tekist á um brons Fótbolti Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Sjá meira