Virkjanir í neðri hluta Þjórsár hafa forgang á Búðarhálsvirkjun 6. febrúar 2008 15:05 Frá Urriðafossi í neðri hluta Þjórsár.
Þrjár virkjanir í neðri hluta Þjórsár eru enn í forgangi hjá Landsvirkjun þrátt fyrir að fyrirtækið hafi tekið aftur til skoðunar áform um byggingu Búðarhálsvirkjunar. Fram kemur í tilkynningu á vef Landsvirkjunar að Landsvirkjun hafi átt í viðræðum við fjölmarga áhugasama orkukaupendur úr virkjunum á Suðurlandi til notkunar í hátækniiðnaði af ýmsu tagi. Segir fyrirtækið ljóst að eftirspurn eftir raforku sé mun meiri en sem nemur orkugetu þeirra þriggja virkjana í neðri hluta Þjórsár sem nú eru í undirbúningi, þ.e. Hvamms-, Holta- og Urriðafossvirkjun. Því hafi Landsvirkjun tekið aftur til skoðunar Búðarhálsvirkjun en áform um hana voru lögð til hliðar á sínum tíma þar sem hún þótti ekki nægilega hagkvæm. Þar sem mögulegir orkukaupendur nú séu líklegir til að greiða hærra verð en áður megi reikna með að sala á raforku frá Búðarhálsvirkjun geti nú orðið ábatasöm. „Landsvirkjun stefnir eftir sem áður að því að byggja fyrst nýjar virkjanir í Þjórsá í því skyni að selja orku til hátækniiðnaðar á Suður- og Suðvesturlandi. Reynist möguleikar á raforkusölu meiri en sem nemur orkugetu virkjananna í neðri hluta Þjórsár verði þess einnig freistað að ná hagfelldum samningum um sölu á raforku úr Búðarhálsvirkjun," segir á vef Landsvirkjunar.Þar segir einnig að hönnun Búðarhálsvirkjunar geti tekið breytingum sem leiði til aukinnar hagkvæmni ef virkjun og/eða miðlanir yrðu byggðar ofar á vatnasviði hennar. Í vinnu við 2. áfanga rammaáætlunar sem nú sé nýhafin á vegum ríkisstjórnarinnar verði slík mannvirki metin í samanburði við aðra virkjunarkosti. „Landsvirkjun telur að öðru jöfnu skynsamlegt að draga ákvörðun um byggingu Búðarhálsvirkjunar þar til að skýrist hverjar niðurstöður í rammaáætlun verða til þess að tryggja sem mesta hagkvæmni virkjunarinnar, nema að þörf verði fyrir orku Búðarhálsvirkjunar áður en þeirri vinnu lýkur og hægt verði að selja hana á verði sem uppfyllir arðsemiskröfur fyrirtækisins," segir enn fremur í tilkynningu Landsvirkjunar.Búðarhálsvirkjun á að verða 80-90 megavatta virkjun og verður inntakslón hennar, Sporðöldulón, myndað með um 2,3 km langri stíflu yfir Köldukvísl, skammt ofan við ármót Köldukvíslar og Tungnaár rétt neðan við Hrauneyjafossstöð. Stöðvarhús Búðarhálsvirkjunar verður ofan jarðar og grafið inn í hlíð Búðarháls við Sultartangalón. Virkjunin hefur þegar farið í gengum umhverfismat.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira