Dópsmygl og ofbeldisbrot fylla Litla-Hraun Magnús Már Guðmundsson skrifar 9. september 2008 11:56 Litla-Hraun.
Í kjölfar fíkniefnamála og ofbeldishrinu á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga hafa margar gæsluvarðhaldskröfur verið settar fram. Í gær kom upp sú staða að ekki var pláss fyrir gæsluvarðhaldsfanga á Litla-Hrauni. Páll Winkel, fangelsismálastjóri, segir óalgengt að fangelsi fyllist vegna gæsluvarðahaldsúrskurða. ,,Þessi staða kemur upp þegar mikið gerist í einu og um er að ræða marga í sama máli eða mörg mál á sama tíma," segir Erlendur S. Baldursson, afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun. ,,Það koma tímabil þar sem jafnvel enginn er í eingangrun en það líður lengra og lengra á milli þess." Núna sitja 18 einstaklingar í gæsluvarðhaldi og helmingur þeirra er í einangrun. Erlendur segir að ekki sé þörf á vista alla gæsluvarðahaldsfanga í einangrun en vegna rannsóknarhagsmuna er það oft á tíðum nauðsynlegt. Sex menn eru í einangrun á Litla-Hrauni, tveir í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og einn í fangageymslu lögreglunnar við Hverfisgötu. Erlendur segir fangelsismálastofnun hafa heimild fyrir því að vista gæsluvarðhaldsfanga í fangelsi lögreglunnar en aðspurður segir hann aftur á móti að það sé ekki heppilegt. Spurður hvort plássleysið undirstriki ekki nauðsyn þess að byggt verði nýtt fangelsi segir Erlendur; ,,Það liggur í augum uppi að við þurfum betri aðstöðu."
Mest lesið Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Hnífstunga á Austurvelli Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Innlent Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Fleiri fréttir Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Sjá meira