Ágúst Ólafur: Fáránlegt og barnalegt af Ögmundi 9. september 2008 11:28 Guðlaugur og Gaddafi. Ekki er vitað til þess að heilbrigðisráðherrann hafi nokkurn tímann hitt Lýbíuleiðtogann. Samsett mynd tekin af síðu Ögmundar Jónassonar.
Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að Ögmundur Jónasson þingmaður ætti að biðjast afsökunar á því að hafa birt á heimasíðu sinni mynd sem virðist sýna Guðlaug Þór Þórðarson taka í hönd Moammar Gaddafi, Lýbíuleiðtoga. „Félagi okkar Ögmundur er kannski ekki þekktur fyrir að vera hófstilltur." sagði Ágúst í spjalli í Bítinu á Bylgunni í morgun. „Mér finnst þetta alveg fáránlegt að þingflokksformaður VG sé að fótósjoppa Gaddaffi einræðisherra með heilbrigðisráðherra. Það sýnir auðvitað hvers konar þrot hann er kominn í. Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur það sjá það allir." Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks var í sama þætti og þótt hann tæki ekki eins djúpt í árinni og Ágúst sagðist hann á þeirri skoðun að myndbirtingin eyðileggi fyrir þeim málstað sem Ögmundur er að berjast fyrir. Ágúst bætti um betur og sagði að tiltæki á borð við þetta yrði ekki einu sinni liðið í menntaskóla. „Þetta er ofsalega barnalegt og fáránlegur dómgreindarbrestur sem hann (Ögmundur) er að sýna. Hann ætti auðvitað að biðjast afsökunar á þessu." Pólitískri list komið á framfæriÁgúst Ólafur Ágústsson.Þegar þáttastjórnendurnir höfðu samband við Ögmund sagði hann tilganginn að koma pólitískri list á framfæri, að verið væri að „fanga hið pólitíska augnablik á áhrifaríkan hátt," sagði Ögmundur og sagðist halda að „allir þeir sem hafi vott af húmor taki þessu vel og skilji hvað átt er við."Ögmundur sagðist hafa viljað vekja athygli á þeirri „einkavæðingu heilbrigðiskerfisins" sem núverandi ríkisstjórn væri að ráðast í. Gaddafi væri í svipuðum hugleiðingum og því hefði honum þótt tilvalið að spyrða þá saman á mynd. Aðspurður hvort hann ætlaði sér að biðja Guðlaug Þór afsökunar sagði Ögmundur að ef einhverjir ættu að gera það þá væru það þeir sem „ætla að taka heilbrigðiskerfið og færa það út á markaðstorgið."Viðtölin við þá félaga af Alþingi má hlusta á hér.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira