Ofbeldið getur haft alvarleg áhrif á andlega líðan barnanna 18. september 2008 13:30 Landspítalinn í Fossvogi. „
Það má gera ráð fyrir að vanræksla og ofbeldi geti haft mjög alvarlegar afleiðingar," segir dr. Berglind Guðmundsdóttir, sálfræðingur hjá áfallamiðstöð Landspítalans. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis greindi í gær frá alvarlegu heimilisofbeldi í sveitarfélagi á höfuðborgarsvæðinu. Þrjú börn sættu ofbeldi af hendi foreldris og var hnífum kastað að einu þeirra. Áhrifin mikil fyrst Berglind segir það þekkt út frá rannsóknum að áhrif áfalla séu gjarnan mikil fyrst og svo sé misjafnt hvernig fólk nái að vinna úr þeim. Það sé ekkert sjálfgefið að áhrifin verði varanleg. „Sumir þurfa langvarandi meðferð og jafnvel ná sér aldrei, en aðrir ná að vinna farsælt úr sínum málum," segir Berglind í samtali við Vísi. Börnin endurupplifa atburðinn Hún segir að eðlileg viðbrögð sem sjáist fyrst eftir alvarleg áföll séu endurupplifanir, til dæmis í formi myndbrota eða martraða. Fólk geti jafnframt átt erfitt með svefn og einbeitingu og óttast umhverfi sitt. Þegar börn séu annars vegar verði hegðun þeirra oft æst og ruglingsleg. „Það getur komið út eins og þau séu með athyglisbrest og ofvirkni," segir Berglind. Hún bendir á að börn forðist gjarnan að tala um áföllin og forðist allt sem minni á atburðin, hvort sem það eru aðstæður, fólk, hljóð, eða annarskonar áreiti. „Þessi viðbrögð eru eðlileg fyrst á eftir," segir Berglind og bendir að sá sem verði fyrir áfallinu þurfi að geta unnið úr atburðinum, sem felur í sér að rifja hann upp og ræða um hann. Viðbrögðin mismunandi Berglind segir að viðbrögð barna geti verið mjög mismunandi. Sum börn sýni árásargjarna hegðun, önnur börn verði hlédræg og svo geti viðbrögðin verið einhversstaðar þarna á milli. Þau geti jafnframt fundið fyrir þunglyndi og annarskonar kvíða. Önnur vandamál geti jafnframt komið upp. Berglind bendir jafnframt á að aðlögunarhæfni manna sé misjöfn. „Sum börn hafa bara gríðarlega öfluga aðlögunargetu," segir Berglind. Hún bendir á að börn þurfi mikinn stuðning og gott umhverfi til að vinna úr áföllum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira