Óttast að verðbólga aukist frekar vegna veikningar krónunnar 26. júní 2008 11:29 Ólafur Darri Andrason, hagfræðingru ASÍ, segir stöðu efnahagsmála grafalvarlega. MYND/Billi
Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, segir nýjar verðbólgutölur ekki koma á óvart en segir stöðu efnahagsmála grafalvarlega. Hann hefur jafnframt áhyggjur af því að verðbólgan eigi enn eftir aukast styrkist gengi krónunnar ekki á ný. Nýjar tölur Hagstofunnar sýna að verðbólgan í júní mælist 12,7 prósent og hækkaði hún um 0,4 prósentustig frá fyrra mánuði. Ólafur Darri segir að því miður komi tölurnar ekki á óvart og bendir á að um sé að ræða hæstu verðbólgu í landinu í 18 ár. „Þetta er grafalvarleg staða," segir Ólafur Darri. Hann bendir á að verðhækkanir á húsnæði séu hættar að leiða verðbólguhækkun eins og tilfellið var fyrir nokkrum misserum. Farið sé að draga saman með vísitölu neysluverðs með og án húsnæðis. Hann á von á því að húsnæðisliður neysluverðsvísitölunnar lækki þegar líður á árið og það geti þá unnið gegn verðbólgunni. „Ég hef hins vegar verulegar áhyggjur af því að gengisfall krónunnar síðustu daga eigi eftir að koma fram í verðbólgunni," segir Ólafur Darri og vísar til þess að mæling á vísitölu neysluverðs fari fram um miðjan mánuðinn, en það var áður en gengi krónunnar tók mikla dýfu. „Ef krónan styrkist aftur ætti það að hjálpa til en ef ekki getum við búist við að innflutningsverðlag hækki sem aftur hefur áhrif á verðbólguna, segir Ólafur Darri enn fremur. Aðspurður hvort hægt sé að grípa til einhverra aðgerða til þess að bregðast við þessy segir Ólafur Darri að það sé engin töfralausn til. „Það skiptir máli að veita markaðnum aðhald núna þegar gríðarlegar sveiflur eru í genginu. Víð verðum að fylgjast með því að menn séu ekki bara að taka til sín hækkanir þegar gengið lækkar heldur lækki líka verðið þegar gengið styrkist," segir Ólafur Darri og vísar meðal annars í tíðar verðbreytingar á eldsneyti að undanförnu. Hann segir árvekni neytenda skipta miklu máli og bendir á að ASÍ hafi reynt að vera á vaktinni á matvörumarkaði með tíðum verðkönnunum. „En meðan við búum við þessa mynt, minnstu fljótandi mynt í veröldinni, þá verður þetta herkostnaðurinn," segir Ólafur Darri.
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Fleiri fréttir Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Sjá meira