Viljayfirlýsing vegna álvers á Bakka framlengd 26. júní 2008 10:35
Fulltrúar Alcoa, ríkisstjórnarinnar og Norðurþings framlengdu í dag viljayfirlýsingu um rannsóknir á hagkvæmni þess að reisa álver á Bakka við Húsavík, til 1. október árið 2009. Um er að ræða framlengingu og uppfærslu á viljayfirlýsingu þessara aðila sem undirrituð var í maí 2006 eins og segir í tilkynningu frá aðilunum þremur. Þar kemur fram að fyrsta og öðrum hluta hagkvæmniathugana vegna álversins sé lokið og niðurstöður þeirra hafi gefið tilefni til að haldið yrði áfram með verkefnið. Ákveðið hafi verið að framlengja vinnu við þriðja hlutann til 1. október á næsta ári til þess að hægt verði að ljúka þeim verkefnum sem aðilar settu sér 2006 áður en lokaákvörðun verður tekin um byggingu álvers á Bakka. Áfram er gert ráð fyrir því að álver á Bakka nái fullum afköstum árið 2015 verði niðurstaða athugana jákvæð. Meðal þess sem unnið verður að næsta eina og hálfa árið er mat á umhverfisáhrifum og þá mun Alcoa halda áfram viðræðum við orkufyrirtæki. Auk þess verður rannsóknum á efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum álvers í sveitarfélaginu og nágrenni lokið, lögð verða fram gögn fyrir starfsleyfi álvers, unnið verður að útfærslu á hafnaraðstöðu og fleira. Samhliða framlengingu á viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, Alcoa og Norðurþings hefur verið unnið að framlengingu á viljayfirlýsingum Alcoa og Landsvirkjunar um raforkusölu og Alcoa og Landsnets um orkuflutning.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira