Olíufélögin lækka bensínið Breki Logason skrifar 26. júní 2008 11:00
Gunnar Karl Guðmundsson forstjóri Skeljungs segir fyrirtækið ekki ætla að elta uppi þá sem komu af stað tölvupósti þar sem fólk er hvatt til þess að sniðganga fyrirtækið. Hann segir bensínverð hér á landi hækka þegar það hækki erlendis og lækka þegar það lækki erlendis. Öll olíufélögin hafa lækkað verð hjá sér í morgun. „Krónan styrktist mikið í gær og olíuverð hefur verið nokkuð stöðugt þannig að við munum lækka í dag. Lækkunin stafar af samspili gengis og olíu," segir Gunnar sem var nýkominn af ráðstefnu um þróun olíuverðs þegar Vísir náði af honum tali. Hann segir verðbreytinguna vera um 2 krónur af hvorri tegund fyrir sig. Gunnar segir fyrirtækið ekki hafa fundið fyrir minni viðskiptum í gær og í morgun í kjölfar tölvupóstanna. „Bensínverð hefur hækkað hér þegar það hækkar úti og lækkað þegar það lækkar úti, það mun gera það áfram," segir Gunnar að lokum. Hermann Guðmundsson forstjóri N1 segir ekkert liggja fyrir um hvort fyrirtækið ætli að leita uppi upphafsmenn póstsins og bendir á að fólk sem fylgst hafi með umræðunni átti sig á því að þetta séu hlutir sem fyrirtækið ráði ekki við. „Við ráðum hvorki genginu né olíuverðinu úti í heimi. Auk þess erum við undir stöðugri smásjá yfirvalda, FÍB og annarra hagsmunaaðila sem væru fljótir að láta í sér heyra ef þetta væri eitthvað óeðlilegt.“
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira