Biðja ríkisstjórnina að hætta að svíkja loforð 26. júní 2008 14:34 MYND/GVA
Þingflokkur Vinstrihreyfinginnar - græns framboðs hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á ríkisstjórnina að hætta þeim leiða ávana að svíkja kerfisbundið þau loforð sem þjóðinni eru gefin. Þingflokkurinn skorar einnig á ríkisstjórnina að hætta að breiða yfir blekkingarnar með spuna og innantómum yfirlýsingum sem engin innistæða er fyrir. Ástæða þessara yfirlýsinga eru fréttir af virkjanamálum nyrðra og syðra. Vinstri - græn segja átakanlegt að sjá hvernig Samfylkingin hafi nú í örmum Sjálfstæðisflokksins svikið hvert einasta loforð sem hún gaf um stóriðjuhlé, náttúruvernd og annars konar atvinnuuppbyggingu á landinu í síðustu kosningum. Verst sé þó að sjá aumlegar og ítrekaðar tilraunir til að breiða yfir svikin með yfirlýsingum um að ríkisstjórnin geti ekkert að gert. Bent er á þingflokkurinn hafi gær skorað á Samfylkinguna að beita sér fyrir því að stöðva virkjanaframkvæmdir í Þjórsá eftir að fregnir bárust af því að tvær virkjanir væru komnar inn að aðalskipulag. „Blekið á þeirri áskorun er varla þornað þegar Samfylkingin herðir nú enn róðurinn við að svíkja þjóðina í öllum þeim loforðum er lúta að náttúruvernd og stóriðjuhléi," segja Vinstri - græn. Þar er vísað til frétta af framlengdri viljayfirlýsingu um álver á Bakka við Húsavík. „Fyrir síðustu Alþingiskosningar lofaði Samfylkingin ítrekað 5 ára „stóriðjuhléi" undir stefnunni „Fagra Ísland". Nú fræðir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra þjóðina um að ekki einn einasti þingmaður eða ráðherra Samfylkingarinnar hafi hreyft mótmælum eða gert athugasemdir við nýtt álver á Bakka á síðasta þingflokksfundi Samfylkingarinnar, ekki einu sinni umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir," segir í tilkynningunni. Segir þingflokkur Vinstri - grænna að það sé ekki bara mikilvægt fyrir náttúru landsins, efnahag og þjóðlífið allt til lengri tíma litið að ríkisstjórnin snúi af braut stóriðjustefnunnar heldur sé það ekki síður mikilvægt samfélaginu öllu að valdhafar komist ekki upp með að blekkja og svíkja. „Ríkisstjórnin hefur þrátt fyrir óvenju mikinn þingmeirihluta sem um getur hefur nú þegar sýnt fullkomið getuleysi til að taka á efnahagsmálum þjóðarinnar, og hún hefur auk þess sýnt að hún stendur engan veginn við þau loforð sem lagt var upp með og breiðir yfir svikin með blekkingum," segir að lokum.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira