Tjón Alcan vegna samráðs metið á um 250 milljónir 1. september 2008 15:23 MYND/GVA
Tjón Alcan vegna samráðs stóru olíufélaganna þriggja var um 251 milljón króna á verðlagi áranna 1993-2001 samkvæmt nýrri matsgerð sem lögð var fram í málinu í dag. Fyrirtaka var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en beðið hefur verið eftir greinargerð matsmanns sem dómari skipaði að beiðni Alcan.Fram hefur komið í fréttum að aðalkrafa Alcan á hendur Olís, Keri og Skeljunig hljóði upp á um 187 milljónir króna vegna þess tjóns sem Alcan telur sig hafa orðið fyrir vegna ólöglegs samráðs félaganna á tíunda áratug síðustu aldar og upphafi nýrrar aldar. Alcan byggir á því að vegna samráðs félaganna þriggja hafi álframleiðandinn þurft að borga hærra verð fyrir vörur frá þeim en ella. Alcan er eitt þeirra félaga sem nefnd eru í skýrslu Samkeppnisstofnunar um samráð olíufélaganna og á þeim grundvelli er málið höfðað.Hjördís Halldórsdóttir, lögmaður Alcan, óskaði eftir dómskvöddum matsmanni til þess að meta tjón félagsins og samkvæmt matsgerðinni nemur tjón álframleiðandans um 251 milljón króna á verðlagi áranna 1993-2001. Forsvarsmenn olíufélaganna þriggja hafa fram til 23. september til þess að skoða matsgerðina og ákveða viðbrögð við henni en þeir geta meðal annars sjálfir farið fram á aðra matsgerð.Tveir dómar hafa þegar gengið í Hæstarétti í málum á hendur olíufélögunum vegna samráðs þeirra. Reykjavíkurborg og Strætó fengu samanlagt um 80 milljónir króna í bætur vegna samráðsins og þá var Ker, sem áður hét ESSO, dæmt til að greiða karlmanni á Húsavík 15 þúsund krónur vegna tjóns hans af völdum samráðsins.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Sjá meira