Innlent

Dýr dropinn

Verð á bensínlítra á stöðvum með fullri þjónustu er komið yfir 160 krónur, eftir fjögurra króna hækkun hjá stóru olíufélögunum í gær. Lítrinn kostar nú röskar 156 krónur í sjálfsafgreislu og svo er hann heldur ódýrari á mannlausu stöðvunum.

Olíuverð hélt áfram að hækka á heimsmarkaði í gær, bæði vestan- og austanhafs. Það fór í tæpa 124 dollara fyrir tunnuna í New York, sem er enn eitt metið í dollurum talilð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×