Færri slasa sig á heitu vatni 13. janúar 2008 13:44 Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnahússins, veitir vef og styrk viðtöku úr hendi Bryndísar Hlöðversdóttur, stjórnarformanns Orkuveitunnar.
Jens Kjartansson, yfirlæknir á lýtalækningadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss telur að átaksverkefnið Stillum hitann hóflega hafi nú þegar borið árangur með fækkun brunaslysa af völdum heits vatns. Áfram er unnið að verkefninu með því að byggingafulltrúar fylgja eftir kröfum reglugerðar um hitastig neysluvatns í nýju húsnæði, fræðsla iðnaðarmanna er efld og lagnaefnissalar bjóða upp á heildarlausnir til að lækka hita neysluvatns í húsum. Orkuveita Reykjavíkur ýtti síðastliðið vor úr vör átaksverkefninu í samstarfi við Sjóvá Forvarnarhúsið, byggingafulltrúann í Reykjavík og Lýtalækningadeild LSH. Fyrirtækið veitti fé til rannsóknar á fjölda og eðli slysa af völdum heits vatns. Þá hleypti OR af stokkunum vefnum www.stillumhitann.is. Á honum er m.a. að finna helstu niðurstöður áðurgreindra rannsókna ásamt fræðsluefni af ýmsu tagi. Þá var gengist fyrir ráðstefnu og námskeiði í samstarfi við byggingafulltrúann í Reykjavík um leiðir til að draga úr hættunni af slysum, m.a. með bættum frágangi neysluvatnskerfa. Í kjölfarið hafa söluaðilar lagnabúnaðar útbúið lausnir sem fáanlegar eru hvort heldur sem er fyrir nýtt húsnæði eða eldra. Árangur þegar náðst Það er mat þeirra sem taka á móti fórnarlömbum brunaslysa á LSH að slysum hafi þegar fækkað. „Það er greinilegur munur," segir Jens Kjartansson yfirlæknir. „Slysunum hefur fækkað umtalsvert og það rek ég beint til átaksins og viðbragða fólks við því." Aðilar sem selja búnað sem lækkar hitastig neysluvatnsins hafa ekki síður orðið varir við aukna eftirspurn eftir honum. Þónokkur fyrirtæki hafa útbúið sérstakar heildarlausnir og má þar nefna Ísleif Jónsson, Tengi og Danfoss. Sjóvá Forvarnarhúsið tekur við vefnum Í dag afhenti Orkuveitan Forvarnarhúsinu vefinn til eignar og umsjónar. Herdís Storgaard forstöðumaður Forvarnahússins veitti vefnum viðtöku ásamt 300 þúsund krónum til viðhalds hans og reksturs auk 300 þúsund króna styrks til almennra forvarna. Á vefnum getur almenningur og fagfólk nálgast upplýsingar og tæknilegar lausnir til að sporna við því að fólk brenni sig á heitu vatni. Börnum og eldra fólki er hættast við bruna af völdum heits vatns og þá sérstaklega sjúklingum. Á vefnum er m.a. sögð saga Hjartar Inga Kristjánssonar, sem er óðum að ná sér eftir slæmt brunaslys. Hjörtur er flogaveikur og rak sig í baðkranann í kasti og skrúfaði þannig óvitandi frá brennheitu vatninu. Baðherbergið er einmitt varasamasti staðurinn samkvæmt rannsókn LSH á slysaskrám. Námskeið fyrir iðnaðarmenn, hönnuði og byggingafulltrúa Í tengslum við verkefnið gengst nú Iðan fræðslusetur ehf, fyrir námskeiðum ætluðum hönnuðum, pípulagningamönnum og byggingafulltrúum. Orkuveitan átti frumkvæði að því að efnt er til námskeiðanna og er ávinningur þátttakenda m.a. að auka meðvitund sína um tíðni brunaslysa, öðlast innsýn í kröfur, staðla og leiðbeiningar um hámarkshita neysluvatns og fá dæmi um tengingar og leiðir til lækkunar hita á heitu neysluvatni.
Mest lesið Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Innlent Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg Innlent Vegkaflinn þar sem banaslysið varð ekki talinn mjög illa farinn Innlent Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Erlent Hart var barist um kjörbréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður Innlent Vísa í nafnið á fyrsta golfvelli Reykvíkinga við val á nýju götunafni Innlent Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Innlent Upplausn á Vopnafirði: Starfslok sveitarstjórans, oddviti hættir og rifist á fundum Innlent Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Innlent Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Erlent Fleiri fréttir Vísbendingar um gerviverktöku í geiranum Hálf-íslenskur hermaður hluti af sænsku herflugsveitinni Mikið svifryk þrátt fyrir rykbindingu Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Samtök atvinnulífsins höfðu betur í Félagsdómi Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Baráttan um formannsembætti Framsóknar Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Lýsa miklum vonbrigðum með viðbrögð Ölmu Vilja ráðast í breytingar á gamla bandaríska sendiráðinu Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg Ómar og Þórólfur segja frá flugferðinni með Flosa Vísa í nafnið á fyrsta golfvelli Reykvíkinga við val á nýju götunafni Hart var barist um kjörbréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður Vegkaflinn þar sem banaslysið varð ekki talinn mjög illa farinn Upplausn á Vopnafirði: Starfslok sveitarstjórans, oddviti hættir og rifist á fundum Menntaverðlaun Suðurlands fóru á Hellu Hæstiréttur staðfestir dóm yfir móður sem myrti son sinn Lýsa ófremdarástandi og krefjast aðgerða strax Vinna að því að fækka sjúklingum og flytja annað Mikilvægi Íslands eykst með nýrri aðgerð NATO á norðurslóðum Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Fjöldi síma kom á óvart Neyðaróp starfsmanna og leynisímar Réðust í húsleit í leit að þýfi Gripinn með þýfi í fórum sínum og sparkað úr landi Kynnir drög að aðgerðaáætlun til að bregðast við offitu Íslendinga Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst Sjá meira