Fær ekki bætur vegna orðaskaks í nágrannadeilum 24. júní 2008 15:08
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag karlmann af kröfu annars manns sem sakaði hann um ærumeiðingar eftir rifrildi. Mennirnir tveir bjuggu í sama húsi og höfðu átt í deilum, meðal annars vegna reykinga í og við húsið. Eitt skipti í fyrra mættust þeir og þegar sá sem stefnt var svaraði ekki kveðju þess sem stefndi kallaði hann hinn fyrrnefnda dóna. Sá sakaði hins vegar stefnandann í málinu um að hafa þrisvar gægst á gluggann hjá sér og sambýiskonu sinni. Þessar ásakanir sætti maðurinn sig ekki við og vildi að þær yrðu dæmdar dauðar og ómerkar. Þá fór hann fram á að nágrannin sætti fangelsi í minnst 30 daga vegna orðanna og að hann greiddi sér hálfa milljón í miskabætur. Enn fremur fór sá sem stefndi í málinu fram á að nágranninn greiddi 110 þúsund krónur til þess að sá fyrrnefndi gæti afritað dómsorð í 100 eintökum til að dreifa til þeirra sem ætla mætti að sá síðarnefndi hefði sagt frá gluggagægjunum. Dómurinn komst hins vegar að því að stefnandinn í málinu hefði átt upptök að orðaskaki mannanna með því að kalla stefnda dóna og vanda um við hann vegna þess að hann hefði ekki tekið undir kveðju stefnanda. Engan veginn væri hægt að fallast á það að að stefndi hefði gerst sekur um lögbrot. Var stefnanda því gert að greiða stefnda 290 þúsund krónur í málskostnað.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira