Innlent

Umsóknum útlendinga um kennitölur fækkar nokkuð

Útlendingum hefur fækkað hér með minnkandi umsvifum í landinu.
Útlendingum hefur fækkað hér með minnkandi umsvifum í landinu. MYND/Vilhelm

Átján prósentum færri útlendingar fengu úthlutað kennitölu hjá Þjóðskrá á fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í vefriti dómsmálaráðuneytisins.

Þar kemur einnig fram að að frá 1. ágúst í fyrra til 31. júlí ár hafi nærri 13.200 útlendingar fengið kennitölu en þeir vour nærri 14.900 á tólf mánaða tímabili þar á undan. Það er því um 11 prósenta fækkun milli ára.

„Álíka margir fengu útgefnar kennitölur fyrstu tvo mánuði ársins í ár og sömu mánuði í fyrra en frá því í mars hafa færri útlendingar óskað eftir kennitölu í hverjum mánuði, samanborið við árið áður. Í þessum samanburðartölum er um að ræða útlendinga sem eru á skrá yfir þá sem ekki höfðu tekið upp fasta búsetu hér á landi," segir í vefritinu.

Fyrstu sjö mánuði ársins fengu Pólverjar úthlutað flestum kennitölum, eins og á sama tíma í fyrra, en þeim fækkaði úr 4.421 í 3.130 milli ára, sem er 29 prósent. Þá óskuð rúmlega helmingi færri Portúgalir eftir kennitölu á tímabilinu og 77 prósent færri Ítalir svo dæmi séu tekin. Hins vegar fjölgaði t.d. Tékkum, Slóvökum og Ungverjum.

Þá fækkar körlum eldri en 18 ára um nærri 30 prósent á milli ára en en fleiri konur og börn fengu íslenska kennitölu á sama sjö mánaða tímabili, samanborið við árið áður.

„Af þeim 28.034 útlendingum sem fengu úthlutað kennitölu hér á landi frá 1. ágúst 2006 til 31. júlí 2008 voru 14.187 á höfuðborgarsvæðinu, 2.420 á Austurlandi og 7.091 á öðrum landsvæðum. Þá voru gefnar út kennitölur fyrir 4.336 manns erlendis," segir í vefritinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×