Innlent

Útthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ

Frá styrkveitingunni
Frá styrkveitingunni

Í gær var í fyrsta sinn úthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Þeir 25 afburðastúdentar sem valdir voru úr hópi glæsilegra fulltrúa ungra námsmanna komu úr 14 framhaldsskólum og þeir sækjast eftir inngöngu í 15 ólíkar námsleiðir. Kynjahlutfallið er 11 karlar á móti 14 konum.

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, afhenti styrkinn, en hann nemur 300 þúsund krónum auk þess sem skráningargjöld að upphæð 45 þúsund krónur eru felld niður. Þá fylgir styrkveitingu jafnframt vilyrði um árlegan styrk út námstímann í grunnnámi sé námsárangur allan tímann framúrskarandi.

Við val á styrkþegum var litið til afburða árangurs á stúdentsprófi en einnig voru lögð til grundvallar sjónarmið um virkni stúdents í félagsstörfum í framhaldsskóla auk árangurs á öðrum sviðum svo sem í listum eða íþróttum. Stjórn sjóðsins átti úr vöndu að ráða en hana skipa Þórdís Kristmundsdóttir formaður, Sigurður J. Grétarsson og Björg Björnsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×