Innlent

Suðurstrandarvegur boðinn út

Vegagerðin hefur boðið út stærsta hluta Suðurstrandarvegar, þess kafla sem liggur milli Þorlákshafnar og Krýsuvíkur, og á verkinu að vera að fullu lokið eftir þrjú ár.

Það eru Þorlákshöfn og Grindavík sem eiga mest undir því að fá uppbyggðan malbikaðan veg á milli þessara tveggja öflugustu sjávarbyggða við suðurströnd landsins. Þessum 58 kílómetra langa vegi hefur reyndar verið lýst sem skólabókardæmi um margsvikin kosningaloforð en honum var fyrst í tengslum við kjördæmabreytinguna þegar Suðurkjördæmi varð til.

Þegar er búið að klára einn kafla næst Grindavík en nú hefur Vegagerðin óskað eftir tilboðum í stærsta hlutann sem eftir er, 34 kílómetra kafla á milli Krýsuvíkurvegar og Þorlákshafnar. Meðal annars á að smíða tólf metra brú á Vogsós neðan Hlíðarvatns í Selvogi.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og verða tilboð opnuð þann 12. ágúst. Samkvæmt auglýsingu Vegagerðarinnarr á undirbyggingu á Krýsuvíkurvegi lokið fyrir 1. júní 2009. Smíði brúar á Vogsós skal lokið fyrir 15. september 2010. Verkinu öllu skal að fullu lokið fyrir 15. september 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×