Augun beinast að Kappa frá Kommu 28. júní 2008 18:49
Hestamenn eru sumir farnir að spá því að Kappi frá Kommu verði næsti Orri frá Þúfu eftir að hann óvænt sló heimsmet í stóðhestadómum á dögunum. Kappi kemur frá hrossaræktarbúi í Skagafirði sem sendir tuttugu hross á landsmót hestamanna í næstu viku. Þúfur eru milli Hjaltadals og Hofsóss og þar ráða ríkjum þau Gísli Gíslason og Mette Mannseth. Þótt ekki sé nema um það bil áratugur frá því þessi norska stúlka settist að á Íslandi bendir margt til þess að hún og hestarnir hennar verði helstu stjörnur landsmóts hestamanna á Hellu í næstu viku. Og víst er að augu margra munu beinast að þessum hesti, Kappa frá Kommu, en á héraðssýningu á Dalvík nýlega hlaut hann 8,42 í aðaleinkunn, og er það heimsmet í flokki fjögurra vetra stóðhesta. Eigendur og ræktendur Kappa eru Vilberg Jónsson í Kommu og hjónin Vignir Sigurólason og Berglind Sigurðardóttur á Húsavík. Einn frægasti stóðhestur landsins, Orri frá Þúfu, er afi hans, og eru menn jafnvel farnir að spá því að Kappi fari á sama stall. En það vekur einnig athygli að hrossarækarbúið að Þúfum nær yfir 20 hestum á landsmótið, þarf af átján frá Mette.Það segir kannski sitt um geðslagið hjá Kappa að hann kom sjálfur in í mynd í viðtalinu þegar á hann var minnst. Mette hefur sjálf vakið athygli í Skagafirði fyrir einstakt lag á hestum og hér lætur hún hryssuna Happadís standa upp með sig án beislis og hefur samt fullkomna stjórn á hestinum, einnig þegar hesturinn stekkur með hana í útreiðartúr. Og þarna eru fleiri heimsmethafar því Seifur frá Flugumýri, sem Mette virðir þarna fyrir sér, hafði nýverið sett met þegar Kappi kom og sló honum við. Það er því líklegt að þessi tvær gæðingar verði báðir í fremstu röð á Hellu.
Mest lesið Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira