Innlent

Kvikmyndatökulið truflar hrefnubát við veiðarnar

Ekkert hefur gengið í dag við hrefnuveiðarnar enda hefur tökulið fylgt hrefnubátnum eftir eins og skugginn.
Ekkert hefur gengið í dag við hrefnuveiðarnar enda hefur tökulið fylgt hrefnubátnum eftir eins og skugginn.

Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna, segir að kvikmyndatökulið hafi komið í veg fyrir hrefnuveiðar í dag. Hvalaskoðunarbáturinn Elding 2 hefur fylgt hrefnuveiðibátnum eftir í allan dag og nú er svo komið að veiðimenn hafa ávkeðið að snúa til hafnar, tómhentir.

Gunnar segir ófært að þessi háttur sé hafður á, ekki komi til greina að skjóta hval með myndatökulið í eftirdragi. „Eigi að taka af þessu myndir verður það að vera í samráði við okkur," segir hann. Ekki er ljóst hvaða tökulið er þarna á ferð en Gunnar segist hafa í allan dag reynt að ná sambandi við hvalaskoðunarfyrirtækið til þess að fá upplýsingar um það, án árangurs.

Gunnar bendir á að veiðislóðir hrefnuveiðimanna séu langt utan skoðunarsvæði hvalaskoðunarbátanna. „Við erum að skjóta dýrin 25 til 30 sjómílur vestur af Gróttu en skoðunarferðirnar fara fram 10 til 12 mílur undan landi.

Hrefnuveiðar hófust í maí og hingað til hafa veðst sjö dýr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×