Krefjast þess að æðstu stjórnendur bankanna víki 18. desember 2008 11:50 Hörður Torfason er einn af talsmönnum Radda fólksins.
Talsmenn Radda fólksins krefja Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, um tafarlausan brottrekstur æðstu stjórnenda nýju bankanna. Grafalvarlegt sé og með öllu óásættanlegt að margir æðstu stjórnendur gömlu bankanna hafi verið endurráðnir í æðstu stjórn nýju bankanna. ,,Þessi glæpsamlega ráðstöfun gjaldfellir trúverðugleika nýju bankanna og gerir þá að aðhlátursefni um heim allan," segir í tilkynningu. Það er skilyrðislaus krafa Radda fólksins að þessir stjórnendur verði tafarlaust reknir og rannsókn hafin á því hvernig stendur á aðkomu þeirra að nýju bönkunum. Raddir fólksins lýsa fullri pólitískri ábyrgð á hendur þeim sem þannig ,,véluðu með fjöregg þjóðarinnar og telja einsýnt að þeir ráðamenn sem áttu hlut að máli axli ábyrgð og segi af sér." Yfirlýsing Radda fólksins: Í dag, fimmtudaginn 18. desember, kröfðu talsmenn Radda fólksins viðskiptaráðherra um tafarlausan brottrekstur æðstu stjórnenda nýju bankanna. Fall gömlu bankanna þriggja, Glitnis, Landsbankans og Kaupþings, í byrjun október sl. markaði upphafið að ferli sem virtir íslenskir hagfræðingar hafa líkt við að nifteindasprengju væri varpað á Ísland. Efnahagslegur grundvöllur landsins hefur verið þurrkaður út og Íslendingar standa ráðþrota eftir með drápsklyfjar sem stjórnvöld, útrásarvíkingar og forsvarsmenn gömlu bankanna hafa kallað yfir almenning með vítaverðu sinnuleysi og vankunnáttu. Ljóst er að stjórnendur gömlu bankanna fóru offari í skjóli máttlítilla ríkisstofnanna og stórhættulegra tengsla ráðamanna og peningafursta. Þannig námu umsvif gömlu bankanna a.m.k. 12 földum tekjum ríkisins á ársgrundvelli og engin von til þess að ríkið gæti hlaupið undir bagga með bönkunum ef illa færi. Segja má að víxlverkandi áhrif glæpsamlegrar vankunnáttu æðstu stjórnenda gömlu bankanna, einbeittur brotavilji svokallaðra útrásarvíkinga og algert getuleysi ríkisstjórnar og ríkisstofnanna að bregðast við vandanum hafi varðað leiðina í mesta efnahagshruni sem dunið hefur yfir þjóðina. Það er því grafalvarlegt og með öllu óásættanlegt að margir æðstu stjórnendur gömlu bankanna hafi verið endurráðnir í æðstu stjórn nýju bankanna, þ.m.t. bankastjórar Glitnis og Landsbankans. Þessi glæpsamlega ráðstöfun gjaldfellir trúverðugleika nýju bankanna og gerir þá að aðhlátursefni um heim allan. Það er skilyrðislaus krafa Radda fólksins að þessir stjórnendur verði tafarlaust reknir og rannsókn hafin á því hvernig stendur á aðkomu þeirra að nýju bönkunum. Raddir fólksins lýsa fullri pólitískri ábyrgð á hendur þeim sem þannig véluðu með fjöregg þjóðarinnar og telja einsýnt að þeir ráðamenn sem áttu hlut að máli axli ábyrgð og segi af sér.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjá meira