Um 70 sagt upp hjá Formaco 29. október 2008 12:13 MYND/Vilhelm
Formaco hefur sagt upp öllum starfssamningum, um 70 talsins, vegna samdráttar á byggingarmarkaði og erfiðleika á gjaldeyrismarkaði. Vonir standa þó til að hægt verði að ráða sem flesta starfsmenn aftur. Félagið þjónustar byggingariðnaðinn og selur meðal annars glugga og hurðir, stálgrindarhús og steypumót. Að sögn Ragnars Jóhannssonar, framkvæmdastjóra félagsins, eru það fyrst og fremst aðstæður á markaði sem leiða til þessarar niðurstöðu ásamt slæmri stöðu á gjaldeyrismarkaði. „Það er ekki hægt að kaupa tryggingar á íslensk fyrirtæki erlendis og því er allt komið í staðgreiðslu hjá öllum birgjum," segir Ragnar og bætir við að þetta séu afleiðingar bankahrunsins hér á landi. Ragnar segir að vegna þessa hafi forsvarsmenn Formaco talið nauðsynlegt að endurskipuleggja og aðlaga reksturinn að breyttum aðstæðum og segja upp öllum starfssamningum. Vonir standi þó til að geta ráðið sem flest af fólkinu aftur áður en uppsagnarfresturinn rennur út og þá verði einnig reynt að færa fólk til í starfi. Aðspurður um það hvernig staðan á byggingarmarkaði á næstu misserum verði segir Ragnar að það viti enginn. „Við horfum upp á það á hverjum degi að stórir og traustir viðskiptavinir segjast ekki geta borgað okkur. Það er klippt á flesta fjármögnunarsamninga hjá verktökum sem þýðir að þeir geta ekki borgað. Þrátt fyrir að við séum mjög stöndugt fyrirtækið endar það með því að við getum heldur ekki borgað," segir Ragnar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira