Vegagerðin til liðs við áhugamenn um risaborkaup 2. mars 2008 13:22 Risabor á Kárahnjúkum. Úr myndasafni
Vegagerðin er komin í samstarf með Austfirðingum og Norðmönnum í könnun á hagkvæmni þess að nota risabor við heilborun jarðganga fyrir þjóðvegi. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi kanna sveitarstjórnarmenn og verktakar á Austurlandi nú þann möguleika á að kaupa síðasta risaborinn í Kárahnjúkum áður en hann verður sendur úr landi eftir tvo mánuði. Íslendingum býðst að fá borinn fyrir lágt verð. Að sögn Hreins Haraldssonar, framkvæmdastjóra hjá Vegagerðinni hafa sveitarfélögin Seyðisfjörður, Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað fengið Vegagerðina til liðs við sig sem og verkfræðistofuna Línuhönnun og sérfræðinga við háskólann í Þrándheimi til að kanna hagkvæmni þess að beita heilborun við gerð jarðganga á Miðausturlandi, en sú könnun er óháð kaupum á þessum tiltekna bor. Á gildandi vegaáætlun er hins vegar aðeins gert ráð fyrir göngum milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, sem leysa munu af Oddsskarðsgöngin. Grunnrannsóknir vegna þrennra ganga sem tengja myndu helstu byggðarlög Austurlands um Mjóafjörð voru gerðar fyrir áratug en ekki reyndist þá pólitískur vilji til að ráðast í það stórvirki. Forsenda hugsanlegra kaupa á síðasta Kárahnjúkabornum er hins vegar sú að samstaða náist milli sveitarfélaga og stjórnvalda um að ráðast í þá jarðgangagerð á Miðausturlandi.
Mest lesið „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Innlent Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns Innlent Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Innlent Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Innlent Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Innlent Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Innlent „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ Innlent Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Innlent MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Innlent Vill að skýrslutaka Murdochs fari fram eins fljótt og hægt er Erlent Fleiri fréttir Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Áhyggjur af tollum ESB, olíuþjófur gómaður og fífldjarfir ferðamenn „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Árekstur í Öxnadal Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi Vilja að ríkisstjórnin leggi allt kapp í að afstýra tollunum Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Ekkert hægt að gera nema húseigendur kæri Segir afkomu hundraða ógnað með beinum hætti Mikil umferð á gosstöðvunum og óvissa á Grundartanga Gripinn glóðvolgur í skjóli nætur við að tappa af bílnum Sóttu veikan ferðamann í Loðmundarfjörð Óteljandi skiptin sem lögregla hefur þurft að vísa sömu mönnum út Vara fólk við því að ganga á nýrunnu hrauninu Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Sjáanlega nóg komið þegar þjóðarleiðtogar taka undir Eldur í yfirgefnu húsi í Borgartúni Tvítugur Akureyringur með rafskutluleigu fyrir ferðamenn Þekktum Íslendingum lögð orð í munn með gervigreind Fulltrúar minnihlutans á einu um að tollarnir hafi ekki verið ræddir Gervigreind leggur Íslendingum orð í munn, bátabruni og veðrið um versló Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni Sjá meira