Kvartar til umboðsmanns Alþingis vegna ákvörðunar ráðherra 23. janúar 2008 19:45
Einn af fimm umsækjendum um embætti dómara við Héraðsdóm Norðurlands Eystra hefur lagt fram kvörtun til Umboðsmanns Alþingis vegna ákvörðunar setts dómsmálaráðherra að skipa Þorstein Davíðsson í embættið. Eins og fram hefur komið gekk Árni Mathiesen, settur dómsmálaráðherra, fram hjá þremur umsækjendum sem metnir voru hæfastir þegar hann skipaði Þorstein Davíðsson í embætti héraðsdómara. Einn þeirra, Guðmundur Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður, hefur nú lagt fram kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna ákvörðunar ráðherra. Skipanin hefur verið gagnrýnd harðlega og hún meðal annars sögð ósiðleg og ólögmæt. Fjallað var um málið á fjölmennum fundi í Háskólanum í Reykjavík í dag. Þar vísaði Sigríður Á. Andersen, lögmaður, þeim fullyrðingum á bug að ráðherra hafi farið út fyrir valdsvið sitt þegar hann skipaði Þorstein í embættið. Hún segir hins vegar eðlilegt að skoða hvort leggja eigi dómnefndina niður og færa starf hennar inn í ráðuneytið. Ástráður Haraldsson, hæstaréttarlögmaður, segir ljóst að ráðherra hefði átt að taka meira tillit til niðurstöðu dómnefndar um hæfni umsækjenda. „Ráðherran getur ekki farið að eigin geðþótt. Hann getur ekki farið eftir því sem honum finnst. Hann verður að komast að niðurstöðu á grundvelli þeirrar aðferðarfræði, þeirrar viðurkenndu aðferðarfræði sem að stjórnsýslureglurnar setja honum." Ástráður segir að ráðherra hafi fallið á prófinu að þessu leyti.
Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Sjá meira