Flugvöllur eða íbúabyggð í Vatnsmýri? 23. janúar 2008 18:38
Það var líklega tvennt sem vakti mesta athygli við málefnaskrá nýja meirihlutans í borginni. Í fyrsta lagi að reynt verði að varðveita 19. aldar götumynd Laugavegarins. Í öðru lagi og efst á lista meirihlutans er hins vegar Vatnsmýrin, að ekki verði hróflað við Reykjavíkurflugvelli á kjörtímabilinu. Ólafur F. Magnússon sagði í fréttum okkar í gær að flugvöllur yrði áfram í Vatnsmýri til langrar framtíðar. Sú fullyrðing á sér ekki stoð í málefnaskrá nýs meirihluta - þar sem segir aðeins að ekki verði tekin ákvörðun um flutning á kjörtímabilinu, þ.e. næsta tvö og hálfa árið, meðan veðurathuganir fyrir ný flugvallarstæði fara fram. Gísli Marteinn Baldursson sagði í samtali við fréttastofu í dag að stefna Sjálfstæðisflokksins í málinu væri óbreytt - og hann hefði í engu skipt um skoðun um byggð í Vatnsmýri. Hann sagði í október s.l vilja að fyrst yrði reist íbúðahverfi í Vatnsmýri og í Örfirisey áður en menn færu að skipuleggja byggð á Geldinganesi. Hann sagði auk þess að langflestir borgarfulltrúar vildu flugvöllinn burt úr Vatnsmýri. Þegar Ólafur F. Magnússon lagði til að horfið yrði frá brottflutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýrinni á borgarstjórnarfundi í apríl 2006 - var afstaða borgarstjórnar skýr. Tillaga Ólafs var kolfelld - með öllum greiddum atkvæðum allra flokka nema hans sjálfs - fjórtán eitt. Við þetta tækifæri létu Sjálfstæðismenn bóka: "Að afstaða þeirra væri að Vatnsmýri færi að mestu undir íbúða- og atvinnusvæði."
Mest lesið Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira