Deilur innan ÁTVR á Akureyri 29. ágúst 2008 18:33
Uppnám er innan ÁTVR á Akureyri eftir að verslunarstjóri jós svívirðingum yfir starfsfólk sitt og lagði hendur á undirmann í samkvæmi. Níu starfsmenn hættu störfum vegna málsins. Aðstoðarforstjóri ÁTVR segir að verslunarstjórinn njóti trausts. Fyrir hálfum mánuði ákvað starfsfólk Vínbúðar ÁTVR á Akureyri að leigja sumarhús og gera sér glaðan dag. En gleðin fór úr böndunum og staðhæfa starfsmenn, sem þó vilja ekki koma fram undir nafni, að drykkja verslunarstjórans hafi farið úr böndunum í teitinni. Hafi hann ausið svívirðingum yfir starfsmenn og lagt hendur á fólk. Meðal ásakana megi nefna að verslunarstjórinn hafi staðhæft að undirmenn hans gættu ekki trúnaðar og væru lausmálgir um komur og kaup viðskiptavina. Daginn eftir hittist meirihlutinn af undirmönnum verslunarstjórans og gerði þá kröfu til stjórnar ÁTVR að annað hvort hættu þeir störfum strax eða þá að verslunarstjórinn yrði látinn fara. Tekið skal fram að megnið að þessum starfsmönnum eru sumarafleysingastarfsmenn eða lausráðnir en einn mun þó fastráðinn. ÁTVR sendi fulltrúa norður til Akureyrar í starfsmannaviðtöl en niðurstaðan varð að verslunarstjórinn hefði ekki brotið þannig af sér að nauðsynlegt væri að láta hann víkja. Hann mætti því sitja áfram. Þetta varð til þess að níu starfsmenn hættu störfum. Aðstoðarforstjóri ÁTVR segir málið erfitt, en að fyrirtækið beri fullt traust til verslunarstjórans. Starfsfólkið bendir á að verslunarstjórinn hafi farið í áfengismeðferð og drykkja hans í samkvæminu sýni að hann eigi við vanda að stríða. Spurð hvort rétt sé að fallinn alkóhólisti stjórni vínbúð, segir aðstoðarforstjórinn að fyrirtækið fari ekki í manndómsgreiningu þó fólk hafi farið í meðferð og leitað lausna á sínum vandamálum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira