Mikil undiralda á fundi ljósmæðra í gærkvöld 17. september 2008 12:23
Mikil undiralda var á fjölmennum fundi ljósmæðra í gærkvöldi og segir formaður Ljósmæðrafélagsins ómögulegt að ráða það af fundinum hvort miðlunartillaga ríkissáttasemjara verði samþykkt. Stjórn Ljósmæðrafélagsins hvetur þær ljósmæður sem sagt hafa upp störfum að draga uppsagnir sínar til baka en um helmingur þeirra hættir störfum um mánaðamótin að óbreyttu. Um eitt hundrað ljósmæður mættu á félagsfund í Borgartúni í gærkvöldi þar sem miðlunartillaga ríkissáttasemjara í deilu þeirra við ríkisvaldið var kynnt. Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segir þetta mjög góða mætingu þar sem um helmingur þeirra tvö hundruð ljósmæðra sem starfa hjá ríkinu hafi mætt á fundinn. Hún segir erfitt að lesa í hug félagsmanna gagnvart tillögunni þar sem viðbrögð hafi verið blendin og þung undiralda á fundinum og því ómögulegt að segja til um hver úrslit atkvæðagreiðslunnar verði. En atkvæðagreiðslan hefst nú á hádegi og stendur til klukkan tólf á hádegi á föstudag. Úrslit verða síðan kynnt klukkan tvö þann dag. Forystukonur ljósmæðra þegja þunnu hljóði þegar spurt er um innihald miðlunartillögunnar en Fréttablaðið greinir frá því í dag að launahækkanir samkvæmt tillögunni geti verið allt að 21 prósent hjá sumum hópum innan félagsins, en ljósmæður höfðu farið fram á 25 próset hækkun. Um tvö hundruð ljósmæður vinnan hjá ríkinu og hafa 98 þeirra sagt upp störfum og taka uppsagnirnar flestar gildi um næstu mánaðamót. Fjármálaráðherra hefur stefnt þeim öllum fyrir hönd ríkisins fyrir ólöglegar uppsagnir. Guðlaug Einarsdóttir segir stjórn félagsins hvetja þær sem sagt hafa upp störfum til að draga uppsagnirnar til baka verði miðlunartillagan samþykkt. Félagið geti hins vegar ekki beitt sé rað öðru leyti í málinu þar sem uppsagnirnar séu á einstaklingsgrundvelli og hver og einn verði að gera það upp við sig hvort uppsögn verði dregin til baka. Guðlaug var á leið til Akureyrar nú rétt fyrir hádegi til að kynna félagsmönnum þar miðlunartillöguna en óvíst var hvort flogið verði til Akureyrar. Hún vonar að ljósmæður taki sér tíma til að meta tillöguna áður en þær greiða atkvæði sitt en atkvæðagreiðslan fer fram á netinu.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira