Notuðu barn sitt sem hnífaskotskífu 17. september 2008 18:30
Rannsókn stendur yfir á máli þriggja barna á höfuðborgarsvæðinu sem sætt hafa alvarlegu ofbeldi af hálfu foreldris. Meðal annars hefur eitt þeirra verið notað sem hnífaskotskífa. Börnin eru öll á grunnskólaaldri og hafa verið fjarlægð af heimilinu. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er málið eitt það alvarlegasta sem fólk í barnaverndarstarfi hefur séð. Af tillitssemi við börnin sem hlut eiga að máli og í ljósi þess hve alvarlegt og viðkvæmt málið er ætlum við ekki að nefna sveitarfélagið sem þau búa í að öðru leyti en að það er á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum Vísis og Stöðvar 2 er annað foreldri barnanna grunað um ofbeldið gegn börnunum þremur. Grunur leikur á að ofbeldið hafi staðið í langan tíma og að í einu tilfelli hafi eitt barnanna verið notað sem hnífaskotskífa, það er að hnífum hafi verið kastað að því og áverkar eftir það sést á barninu. Málið hefur verið til meðferðar hjá barnaverndarnefnd í viðkomandi sveitarfélagi og hefur lögreglan tekið skýrslu af börnunum, samkvæmt heimildum fréttastofunnar, en yfirmenn rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðisins kannast ekki við þær skýrslutökur. Mál barna sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi koma til kasta Barnahúss en slíkt úrræði skortir fyrir börn sem verða fyrir ofbeldi af öðrum toga.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira