Meirihluti og minnihluti bókuðu saman gegn Ólafi 17. september 2008 13:47 MYND/GVA
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna sameinuðust í gær í bókun á borgarstjórnarfundi vegna tillögu Ólafs F. Magnússonar. Ólafur hafði lagt fram þá tillögu að ekki yrði unnin frekari skipulagsvinna þar sem verðlaunatillaga í hugmyndasamkeppni um Vatnsmýrina væri höfð að leiðarljósi á meðan óvissa ríkti um framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar. Tillagan var felld með 14 atkvæðum gegn einu líkt og önnur tillaga sem Ólafur lagði fram fyrir tveimur vikum um að aftur yrði kosið um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar. Eftir að tillaga Ólafs var felld í gær lét hann bóka að borgarfulltrúar allra framboða nema F-listans sett sínar áherslur í skipulagsmálum á hærri stall en þau brýnu öryggis-, heilbrigðis- og samgöngusjónarmið sem mæltu eindregið gegn brottflutningi flugvallarins úr Vatnsmýri. Aðrir borgarfulltrúar létu hins vegar bóka að afgreiðsla tillögunnar tæki mið af þeirri miklu vinnu sem hefði farið fram á vettvangi borgarstjórnar um nauðsynlegt heildarskipulag fyrir þetta svæði, óháð staðsetningu innanlandsflugvallar. „Borgarstjórn, borgarráð og önnur fagráð borgarinnar hafa ítrekað lýst yfir ánægju með þá hugmyndavinnu sem vinningstillagan felur í sér. Í tillögunni felast afar mikilvæg sjónarmið að því er varðar umhverfis- og samgöngumál og aukna möguleika á sjálfbærri borgarþróun til framtíðar. Að auki samþykkti borgarráð samhljóða í febrúar sl. að vinna að skipulagi á þessu svæði á grundvelli tillögunnar, sérstaklega hvað varðar jaðarsvæðin þar sem hægt er að skipuleggja íbúðabyggð óháð staðsetningu flugvallarins. Um þessa málsmeðferð hefur ríkt mikil og góð samstaða og sátt á vettvangi borgarstjórnar, enda felst í henni ábyrg afstaða til þessa stóra framtíðarverkefnis," segir í bókuninni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira