Neyslan minnkar en meira borgað fyrir neysluvörur 12. september 2008 12:54 MYND/Heiða
Velta í dagvöruverslun dróst saman um tvö prósent á föstu verðlagi í ágúst miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta sýna nýjar tölur frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þegar horft er til breytilegs verðlags jókst velta dagvöruverslunar hins vegar rúm 18 prósent miðað við sama mánuð í fyrra. Segir í tilkynningu Rannsóknasetursins að þetta sýni að neysla landans minnki en neytendur borgi meira fyrir matinn en áður. Verð á dagvöru hækkaði um rúman fimmtung frá ágúst í fyrra til ágúst á þessu ári og sama þróun á sér stað í öðrum tegunda verslunar. Þá sýna tölur Rannsóknarsetursins að sala á áfengi hafi minnkað um 4,5 prósent í ágúst miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi en hún jókst um 5,4 prósent ef miðað er við breytilegt verðlag. Verð á áfengi hækkaði um rúm tíu prósent í ágúst síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt verðmælingu Hagstofu Íslands. Sömu sögu er að segja af sölu á fötum og húsgögnum, hún dregst saman á föstu verðlagi en eykst í krónum talið vegna hækkandi verðs milli ára. Hins vegar varð samdráttur í skóverslun bæði með tilliti til fasts verðlags og í krónum talið. „Þrátt fyrir miklar verðhækkanir má ætla að verslunin hafi að nokkru leyti tekið á sig hækkanir. Gengisvísitalan hækkaði á einu ári, frá ágúst í fyrra til ágúst á þessu ári, um 32% og ættu innfluttar vörur því að hafa hækkað um sama hlutfall ef innkaupsverð hefði haldist óbreytt og ef gengisáhrifin hefðu öll komið fram í verðlagi. Verðhækkanir á sérvörum eins og fötum, skóm og húsgögnum hafa verið mun minni en gengisáhrifin segja til um," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira