Ekki stendur til að beita bráðabirgðalögum í kjaradeilu ljósmæðra 12. september 2008 11:36 MYND/Stöð 2
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ekki hafi komið til umræðu eða standi til að beita bráðabirgðalögum í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins. Þetta kom fram í umræðum um frestun á fundum Alþingis, en Alþingi lýkur störfum í dag og kemur aftur saman í byrjun október. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri - grænna, kom í pontu í umræðunni um þingfrestunina og spurði ráðherra hvort til umræðu hefði verið að beita bráðabirgðalagaákvæði í kjaradeilu ljósmæðra á meðan hlé væri á þingi. Benti hann enn fremur á að fjármálaráðherra starfaði ekki einn í ríkisstjórn heldur á ábyrgð á beggja ríkisstjórnarflokka. Gjörningur ráðherra að stefna ljósmæðrum væri á ábyrgð beggja flokka. Geir H. Haarde forsætisráðherra benti á að verið væri að ræða um frestun funda Alþingis og óvenjulegt væri að ræða önnur mál við það tilefni. Ekki hefði komið til tals eða stæði til að hans áliti að beita bráðabirgðalögum til að binda enda á kjaradeiluna. Það væri á ábyrgð samningsaðila að semja í málinu og ábyrgð þeirra væri mikil. Deilan væri á viðkvæmum punkti og umræður í Alþingi hjálpuðu ekki til við að leysa deiluna frekar en aðrar kjaradeilur. Hann höfðaði til samningsaðila að leysa málið undir traustri forystu sáttasemjara. Árni Þór fagnaði yfirlýsingu ráðherra um að ekki yrði gripið til bráðabirgðalaga en benti á að málshöfðun fjármálaráðherra væri ekki til þess fallin að efla mönnum bjartsýni eða traust milli samningsaðila. Það framlag væri ekki til fyrirmyndar og vafalaust til að hleypa meiri hörku í málið.
Tengdar fréttir Ljósmæður reiðar fjármálaráðherra Mikil reiði kom fram á félagsfundi ljósmæðra í gærkvöldi, yfir því að Árni Mathiesen fjármálaráðherra skuli hafa stefnt Ljósmæðrafélaginu fyrir ólöglegar uppsagnir í sumar og krefjist þess að þær verði dæmdar ólögmætar. 12. september 2008 07:34 Mest lesið Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent Kom ekki á teppið Innlent Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Erlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Innlent Fleiri fréttir Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar Sjá meira
Ljósmæður reiðar fjármálaráðherra Mikil reiði kom fram á félagsfundi ljósmæðra í gærkvöldi, yfir því að Árni Mathiesen fjármálaráðherra skuli hafa stefnt Ljósmæðrafélaginu fyrir ólöglegar uppsagnir í sumar og krefjist þess að þær verði dæmdar ólögmætar. 12. september 2008 07:34