Gagnrýna launamun hjá ríkinu og á hinum almenna markaði 12. september 2008 17:24 Árni Stefán Jónsson, formaður SFR. MYND/Völundur
Trúnaðarmannaráð SFR fundaði í dag. Á fundinum voru niðurstöður úr nýrri launakönnun SFR kynntar og að auki niðurstöður úr samanburði milli félaga í SFR og VR, að því er fram kemur í tilkynningu frá SFR. Í henni kemur meðal annars fram að þegar félagsmenn þessara stéttarfélaga eru skoðaðir þá kemur fram að starfsmenn ríkisins eru að meðaltali með 20% lægri laun en starfsmenn almenna markaðarins þegar sambærilegar stéttir eru skoðaðar. Þá var launamunur kynjanna hjá ríkinu einnig gagnrýndur harðlega. Í ályktun sem samþykkt var á fundinum bendir trúnaðarmannaráðið á að óásættanlegur munur sé á milli launa starfsmanna ríkisins og starfsmanna á almennum markaði. „Starfsmenn ríkisins hafa lengi búið við lægri laun en starfsmenn á almennum markaði og í nýrri launakönnun SFR kemur fram að þessi munur er allt að 27% milli sambærilegra stétta. Að meðaltali er munurinn 20%. Í gegnum tíðina hefur ríkið réttlætt þetta ranglæti með því að halda fram að réttindi ríkisstarfsmanna væru svo mikil að þeir verðskulduðu ekki hærri laun! Þessi röksemd er fjarri öllu lagi og staðreyndir sýna að réttindi starfsmanna á almennum markaði eru í dag ekki svo frábrugðin réttindum ríkisstarfsmanna. Launamunur upp á 20% að meðaltali verður ekki réttlættur með þeim rökum," segir í ályktuninni. „Trúnaðarmannaráð SFR gerir þá sjálfssögðu kröfu, að launamunur milli starfsmanna ríkisins og starfsmanna á almennum markaði verði leiðréttur." segir einnig. Þá var einnig ályktað um launamun kynjanna en í könuninni kom fram að sá munur sé vaxandi og viðvarandi vandamál hjá ríkinu. „Trúnaðarmannaráð SFR lítur það mjög alvarlegum augum að ríkið skuli láta þetta ástand viðgangast. Konur hafa samkvæmt launakönnuninni um 27% lægri heildarlaun en karlar. Þessi munur lækkar niður í 17,2% þegar tekið hefur verið tillit til allra þeirra þátta sem skýrt geta muninn. Sambærileg tala frá síðustu könnun er 14,3% og hefur launamunurinn því aukist um 3 prósentustig á einu ári. Þetta ástand er mjög alvarlegt og algerlega óásættanlegt. Á sama tíma hefur ríkisstjórn Íslands heitið því að draga úr og afmá launamun kynjanna," segir í ályktuninni. „Trúnaðarmannaráð SFR gerir þá sjálfssögðu kröfu að ríkisvaldið taki þau skref sem duga til að vinna á launamuni kynjanna. S FR - stéttarfélag í almannaþjónustu hefur ítrekað bent á að leiðrétting á launamuni kynjanna verður ekki gerð nema með því að setja fjármuni í verkefnið og hækka laun kvennastétta sérstaklega. Ljóst er að hinar fjölmennari kvennastéttir í umönnunarstörfum, í félagsþjónustu s.s. við málefni fatlaðra og í skrifstofustörfum eru þær stéttir sem misréttið bitnar harðast á. Kjör þessara stétta þarf að lagfæra án tafar," segir að lokum.
Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Erlent Fleiri fréttir Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Sjá meira