Skuldabyrði almennings snarhækkar 27. október 2008 18:43
Skuldabyrðar almennings vegna bankahrunsins og ástandsins hafa snarhækkað um 30 milljarða á einum mánuði. Sá sem tók hámarkslán Íbúðalánasjóðs fyrir fjórum vikum horfir nú fram á nærri hálfa milljón bætast ofan á höfuðstólinn. Á meðan lánin hækka skipar félagsmálaráðherra sérfræðingahóp. Sá þrýstingur verður æ háværari á stjórnvöld að koma í veg fyrir að lán almennings hækki hér upp úr öllu valdi. Borgarafundur verður í Iðnó í kvöld, vefsíður spretta upp, fésbókargrúppur verða til. Nýjar verðbólgutölur birtust í morgun - og nú stendur verðbólgan í 15,9 prósentum. Þetta hefur bein áhrif á höfuðstól okkar verðtryggðu lána. Heimilin í landinu skulda nú um 1400 milljarða króna í verðtryggðum lánum. Það þýðir að heimilin skulda að jafnaði tæplega 10,3 milljónir króna í verðtryggðum lánum, ofan á þær milljónir bættust við 230 þúsund krónur á einum mánuði. En tökum nærtækara dæmi. Hjón sem tóku 20 milljónir króna að láni fyrir sléttu ári - og hafa borgað af því skilvíslega - hafa nú, 12 mánuðum síðar, hreint ekki lækkað höfuðstólin með svokölluðum afborgunum, heldur þvert á móti hækkað hann um 3 milljónir króna. Hefðu hjónin tekið lánið í september nú rétt fyrir hrun bankanna, á meðan flest lék í lyndi á Íslandi, þá hefði það á einum mánuði hækkað um nærri hálfa milljón íslenskra króna (470 þúsund krónur). Þessi hækkun mun skila sér inn á greiðsluseðil manna í desember. Þessi hálfa milljón fer hvergi, fyrr en lánið er uppgreitt, einhvern tímann á ævikveldinu. En það var fyrst í dag sem félagsmálaráðherra skipaði starfshóp til að bregðast við vanda lántakenda vegna verðtryggingar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira