Innlent

Skuldir íslenskra heimila 963 milljarðar

Heildarskuldir íslenskra heimila við innlánsstofnanir námu 963 milljörðum í júlí og hækkuðu um fjórtán milljarða frá mánuðinum á undan, samkvæmt tölum Seðlabankans.

Hækkunina má að verulegu leiti rekja til gengisbundinna lána, en þau nema hátt í fjórðungi heildarskulda heimilanna. Síðan hefur verðtrygging haft einhver áhrif , en hennar gætir sérstaklega í mikilli verðbólgu eins og núna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×