Lettar latastir við að telja fram 17. maí 2008 19:23
Auk Íslendinga greiðir fólk frá tuttugu og níu þjóðlöndum skatta á Íslandi. Pólverjar eru fjölmennastir en Filipseyingar eru duglegastir við að skila inn skattframtölum. Lettar eru hins vegar latastir við að skila inn framtali. Við álagningu 2007 voru um 253 þúsund einstaklingar á skattskrá. Þar af voru um 25.300 með erlent ríkisfang. Í Tíund, fréttablaði Ríkisskattstjóra er farið yfir það hvaða þjóðir standa sig best og verst þegar skattframtalið er annars vegar. Það hefur farið vaxandi undanfarin ár að fólk trassi það að skila skattframtali. Fyrir tíu árum voru aðeins tæp 4 prósent sem skiluðu ekki skattframtali. Í fyrra var þessi tala komin yfir 7 prósent, en þá voru áætluð gjöld og tekjur á samtals rúmlega 18 þúsund gjaldendur. Þar af voru 5.750 erlendir ríkisborgarar, en það þýðir að tæplega 32 prósent útlendinga skiluðu ekki skattframtali og fá því áætlun frá skattinum. Pólverjar eru fjölmennastir hér á landi. Þeir eru nokkuð duglegir við að skila skattframtölum, aðeins tæplega 13 prósent fengu áætlun. Þá standa Filipseyingar sig vel í því að telja fram, aðeins 8.5 prósent þeirra fengu áætlun og aðeins 8.7 prósent Kínverja. En þegar litið er á trassana, þá eru Lettar efstir á blaði. tæplega 63 prósent þeirra skiluðu ekki framtali og rúmlega 45 prósent Spánverja. Tæplega 42 prósent Frakka skiluðu ekki skattframtali og fengu því áætlun. Launagreiðendur bera ábyrgð á því að halda eftir staðgreiðslu af launum, en hún er ekki endanlegt uppgjör.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira