Ný álma tekin í notkun hjá MS félaginu 24. janúar 2008 20:23 Sigurbjörg Ármannsdóttir, formaður MS félagsins, og Þóra Hallgrímsson, móðir Margrétar Björgólfsdóttur, vígðu nýju viðbygginguna að viðstöddum fjölda félagsmanna, aðstandenda og velunnara MS félags Íslands.
MS félag Íslands tók í dag notkun nýja álmu við húsnæði félagsins, MS heimilið að Sléttuvegi 5 í Reykjavík. Nýja álman gjörbyltir aðstöðu til að veita þeim sem greinst hafa með MS sjúkdóminn nauðsynlega aðhlynningu og þjálfun. Þá opnast nýir möguleikar á að veita aukna þjónustu á sviði heilsuræktar, jógaiðkunar og félagsstarfsemi. MS-heimilið gegnir mikilvægu hlutverki sem miðstöð fyrir fólk með MS-sjúkdóminn og þangað sækja yfir 70 einstaklingar þjónustu í viku hverri. Nýja álman er 180 fermetrar að stærð og kostnaður við bygginguna nam tæpum 60 milljónum króna. Minningarsjóður Margrétar Björgólfsdóttur veitti MS félaginu 20 milljónir króna í styrk á síðasta ári fyrir byggingunni og var fyrsta skóflustungan tekin í mars 2007. Framkvæmdasjóður fatlaðra og Alþingi lögðu einnig til myndarleg framlög til byggingarinnar. Sigurbjörg Ármannsdóttir, formaður MS félagsins, og Þóra Hallgrímsson, móðir Margrétar Björgólfsdóttur, vígðu nýju viðbygginguna að viðstöddum fjölda félagsmanna, aðstandenda og velunnara MS félags Íslands. Sigurbjörg sagði við opnun þessa þriðja áfanga heimilisins, að þetta væri gleðidagur í sögu félagsins og sagði formaðurinn m.a., að "við byggingu þriðja áfangans, sem við opnum nú var það höfðinglegur styrkur úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur, sem réði úrslitum um að hægt var að hefjast handa." Björgólfur Guðmundsson, formaður stjórnar Minningarsjóðs Margrétar Björgólfsdóttur, óskaði MS félaginu til hamingju með glæsilega aðstöðu og sagði það skipta öllu máli að fólk sem þekkti sjúkdóminn af eigin raun stæði í brúnni. „Öflugt grasrótarfélag eins og MS félagið nær ekki árangri vegna fjárframlaga, heldur vegna fólksins sem að því stendur. Að MS félaginu stendur öflugt fólk sem þekkir MS sjúkdóminn af eigin reynslu og þessi aðstaða varð til vegna elju og dugnaðar þessa fólks."
Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Sjá meira