Dagur: Í dag ætti að kjósa í Reykjavík 24. janúar 2008 13:03
Dagur B. Eggertsson, fráfarandi borgarstjóri, segir borgarbúa hafa orðið vitni að afbökun á lýðræði og stjórnmálum með myndun nýs meirihluta sjálfstæðismenna og Ólafs F. Magnússonar. „Í dag ætti að kjósa í Reykjavík, ekki í borgarstjórn heldur í Reykjavík," sagði Dagur. Ástæðan væri sú að borgarbúar hefðu orðið vitni að því að það hefði verið misfarið með vald og lýðræði. Það væri komið í ljós að hinn svokallaði nýi meirihluti væri byggður á blekkingum, fljótfærnislegum vinnubrögðum og veruleika sem fólk hefði aldrei áður kynnst í íslenskri pólitík. Dagur vísaði til þess að í dag eru nákvæmlega 100 ár frá því að fjórar konur tóku fyrstar kvenna sæti í borgarstjórn. Þessi dagur ætti því að vera tákn um lýðræði og hverngi fólk með áhuga á stjórnmálum gæti haft áhrif. Flest benti hins vegar til að nýr meirihluti hefði verið búinn til af tveimur einstaklingum - tveimur körlum. Meirihlutinn væri andvana fæddur og fæli í sér djúpstæðari stjórnarkreppu en menn gerðu sér grein fyrir í fyrstu. „Þetta er ákaflega mikill ábyrgðarhluti," sagði Dagur. Sjálfstæðisflokkurinn á hnjánum Dagur sagði enn fremur ljóst af samskiptum hans og Svandísar Svavarsdóttur við Ólaf F. Magnússon á mánudag að Ólafur hafi verið þess fullviss að það ættu sér stað viðræður við aðra úr fráfarandi meirihluta. „Það var auðvitað fjarri sanni," sagði Dagur og bætti við: „Rétt er að halda því til haga að allt frá því að Sjálfstæðisflokkurinn féll saman í haust og nýr meirirhluti tók við hafa sjálfstæðismenn verið á hnjánum seint og snemma að melda hitt og þetta, að þeir væru til í hitt og þetta með og án Villa." Því hafi verið svarað með hæðnisbrosi enda ekki verið að fjalla um einhvern 15 manna klúbb heldur ákvarðanir með almannahagsmuni í huga. Sagði Dagur Sjálfstæðisflokkinn hafa lagst á hnén og boðið borgarstjórastólinn en látið hugsjónir lönd og leið. Mikil væri reisn þessa gamla flokks. Sagðist Dagur stoltur af sínum verkum þá hundrað daga sem hann hefði setið sem borgarstjóri og því fólki sem hann hefði unnið með. Þakkaði hann þeim, starfsmönnum borgarinnar og borgarbúum fyrir samstarfið. „Ég ætla fullvissa alla að við erum rétt að byrja," sagði Dagur.
Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Sjá meira