Um hreina brottvikningu að ræða 20. september 2008 20:02 Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður.
Dómsmálaráðherra er augljóslega að reyna losa sig við lögreglustjórann á Suðurnesjum með því að auglýsa starf hans laust til umsóknar að mati Sveins Andra Sveinssonar, hæstaréttarlögmanns. Hann segir um hreina brottvikningu að ræða. Dómsmálaráðuneytið ætlar að auglýsa starf Jóhanns R. Benediktssonar, lögreglustjórans á Suðurnesjum, laust til umsóknar þrátt fyrir að hann hafi ekki sagt starfi sínu lausu. Jóhanni var tilkynnt þessi ákvörðun ráðuneytisins í bréfi í byrjun mánaðarins. Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, segir mjög óvenjulegt og nánast einsdæmi að ráðuneyti fari fram með þessum hætti. „Hin venjulega framkvæmd er sú að maður sem hefur þennan afmarkaða skipunartíma hyggst halda áfram þá er hans skipunartími einfaldlega framlengdur og starfið ekki auglýst en með þessu er auðvitað verið að segja að hans tími er liðinn og annar eigi að koma í staðinn. og þetta er auðvitað bara brottrekstur," segir Sveinn Andri í samtali við Stöð 2. Deilur hafa staðið milli ráðuneytisins og lögreglustjórans um skipan mála í umdæminu eftir umtalsverðan hallarekstur á síðasta ári. Tilraunir til að leysa hnútinn hafa runnið út í sandinn og segir Sveinn augljóst að ráðherra sé nú að losa sig við lögreglustjórann. „Það þarf enginn að segja okkur annað. Það bara er þannig. það er sama þótt menn reyni að klæða þetta í annan búning. Dómsmálaráðherra er bara að losa sig við óþægilegan mann. Punktur. Þannig er það bara." Björn Bjarnason vísar því hins vegar á Bug að verið sé að bola Jóhanni úr embætti. „Með því að auglýsa embættið er ekki verið að bola neinum úr embætti. Ég hef verið þeirrar skoðunar að það eigi að auglýsa embætti miklu oftar heldur en gert er," segir Björn og bætir við: „Eftir þennan fimm ára tíma en í þessu tilliti eru alveg klárar efnislegar forsendur fyrir að taka þessa ákvörðun. Þær geta ekki verið skýrari."
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í lýðháskóla Erlent Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Fleiri fréttir Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Sjá meira