Hópslysaæfing á Landspítala tókst vel 20. september 2008 13:30
Landspítali var settur á virkjunarstig laugardagsmorguninn 20. september 2008 vegna rútuslyss sem gert var ráð fyrir að orðið hefði í Ártúnsbrekku í Reykjavík og var unnið samkvæmt nýrri viðbragðsáætlun spítalans. Æfingin er sögð hafa heppnast vel en í viðbragðsáætluninni er gert ráð fyrir þremur stigum, viðbúnaðarstigi, virkjunarstigi og neyðarstigi. Á viðbúnaðarstigi eru fáir kallaðir til en treyst á það starfsfólk og þekkingu sem er til staðar á vaktinni hverju sinni. Á virkjunarstigi er útkallið stærra en samt um mikinn sveigjanleika að ræða. Á neyðarstigi er umfangið svo mikið að nauðsynlegt er að virkja Landspítala að fullu. Á æfingunni var í fyrsta skipti notað nýtt fjarskiptaskipulag fyrir Landspítala. „Æfingin miðaðist við 52 slasaða og voru þeir fluttir á bráðamóttökur spítalans í Fossvogi og við Hringbraut. Á spítalann voru 20 mikið slasaðir, 20 nokkuð slasaðir og 12 minna slasaðir. Þegar æfingunni lauk kl.12:20 höfðu 5 manns verið fluttir í aðgerð. Látnir voru fjórir. Sjúkrahús á suðvesturhorni landsins voru í viðbragðsstöðu en ekki kom til þess að það þyrfti að flytja sjúklinga þangað," segir í tilkynningu frá spítalanum. Landspítali stóð að æfingunni en margir fleiri tóku þátt í henni, svo sem Lögreglan í Reykjavík, embætti Ríkislögreglustjóra, Slökkvilið höfuðborgarsvæðins, Rauði kross Íslands, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins og Samhæfingarstöðin við Skógarhlíð. Í tilkynningunni kemur einnig fram að æfingin hafi tekist mjög vel og að næstu dagar verði notaðir í að safna saman upplýsingum um hana, hvað tókst vel og hvað miður til þess að læra af reynslunni og bæta úr þar sem kann að vera þörf á því, meðal annars í sjálfri viðbragðsáætlun spítalans.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Vill breyta lögum um .is Innlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Erlent Fleiri fréttir Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Sjá meira