Innlent

Dóp og sterar finnast í húsleit

Fíkniefni fundust við húsleit í Breiðholti í gærmorgun en um var að ræða bæði amfetamín og marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á umtalsvert magn af sterum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Kona á fertugsaldri var handtekin vegna málsins. Fíkniefnaleitarhundur frá tollinum var notaður við þessa aðgerð sem er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×