Þingmenn flognir til fundar á Vestfjörðum 17. apríl 2008 12:01 Fundurinn verður haldinn á Patreksfirði.
Þingmenn Norðvestur kjördæmis ætla að hitta sveitarstjórnarmenn í Vesturbyggð á fundi í dag. Rætt verður um málefni svæðisins en búast má við því að áætlanir um olíuhreinsunarstöð verði ofarlega á baugi. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins er einn þeirra þingmanna sem sækja fundinn. „Það er nú ekki boðað til þessa fundar vegna umræðunnar síðustu daga um olíuhreinsunarstöð en ég er viss um að það verður rætt," segir Guðjón Arnar. „Kannski búa sveitarstjórnarmennirnir yfir meiri upplýsingum um málið." Guðjón segir fjölmörgum spurningum enn ósvarað í því máli en í fréttaskýringarþættinum Kompási á þriðjudag var farið yfir málið og reynt að varpa ljósi á hverjir standi að framkvæmdinni. „Það kom ekkert á óvart í þessum þætti. Þetta voru nákvæmlega sömu svör og ég hef áður fengið frá Ólafi Egilssyni um þetta mál," segir Guðjón en Ólafur er einn aðstandenda verkefnisins. Guðjón Arnar Kristjánsson er einn þeirra þingmanna sem mæta mun á fundinn. Að sögn Guðjóns er ekki hægt að taka afstöðu til málsins fyrr en öll spil eru komin upp á borðið. „Þess vegna hefur maður verið að gera kröfu til að fá þessar upplýsingar." Ragnar Jörundsson, sveitarstjóri Vesturbyggðar, segist einnig gera ráð fyrir að málið verði rætt á fundinum. „Það verða mörg mál til umræðu á fundinum enda af nógu að taka," segir Ragnar og nefnir atvinnu-, samgöngu- og menntamál í því sambandi. „En við komum nú kannski eitthvað inn á málefni olíuhreinsunarstöðvar en það mál er annars í góðum farvegi." Ragnar segist furða sig á umræðunni og segir að um sé að ræða einhverja Rússagrýlu, en rússneskir aðilar eru sagðir standa á bak við stöðina. „Spurðu Össur Skarphéðinsson um hverjir munu standa að olíuleit á Drekasvæðinu svo dæmi sé tekið. Þú færð engin svör um það enda er um viðskiptaleyndarmál að ræða," segir Ragnar og bendir á að málið hafi aðeins verið í tæpt ár í undirbúningi.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Sjá meira