Gagnrýna viðskiptahætti með notaða bíla harðlega 30. ágúst 2008 10:18
Þröstur Karelsson, sölustjóri Bílamarkaðsins í Kópavogi, segir aðgerðarleysi þeirra eftirlitsaðila, sem eigi að fylgjast með að réttir viðskiptahættir séu viðhafðir við sölu bifreiða og vöru og þjónustu almennt, vítavert. Enn einu sinni fari bílaumboðin af stað með ímyndaðan afsláttarleik við neytendur. Með því að hækka verð notaðra bifreiða og mynda með því stórafslætti við sölu. „Við höfum gert kannanir á bílum á plani Bílaoutlet sem Ingvar Helgason rekur og vistað upplýsingar á heimasíðunni okkar, bbv.is. Þar er hægt að fylgjast með aðferðum þessara aðila," segir Þröstur sem býst við að fleiri af stóru bílaumboðunum fari af stað í kjölfar Ingvars Helgasonar hf (IH) og Bifreiða og landbúnaðarvéla (B&L). Gripið til örþrifaráða „Bílamarkaðurinn harmar slíka viðskiptahætti sem B&L og IH stunda. „Slíkir viðskiptahættir geta haft slæm áhrif á bílamarkaðinn á Íslandi um ókomin ár, því tækifærismennska stóru bílaumboðanna er í algleymingi nú. Þeim líður greinilega hálfilla vegna mikils bílalagers og lítillar sölu á nýjum bílum. Þá er gripið til örþrifaráða, sbr. það sem Bílaoutlet er að gera, múgæsingur og platleikur í hæsta gæðaflokki og ekkert til sparað en inn á milli eflaust hægt að kaupa bíla á fínu verði hjá þessum aðilum," segir Þröstur. Bílamarkaðurinn hefur að sögn Þrastar skoðað fjölmörg dæmi og borið saman við verð á íslenskum bílamarkaði ásamt því að slá viðkomandi dæmum/bílum upp í reikniforriti Bílgreinasambandsins. „Okkar niðurstaða er sú að Bílaoutlet IH og B&L sýni mögulega hæsta og oft á tíðum mun hærra ásett verð bíla en almennt gerist á markaðnum. Með því sýnist væntanlegum kaupendum að umtalsverður „afsláttur" sé á viðskiptunum á viðkomandi bifreiðum," segir Þröstur. Í dag er bílamarkaður á Íslandi kaupendamarkaður, þ.e.a.s. hægt er að gera góð kaup hjá flestöllum bílasölum sökum erfiðari sölu á bílum en oft áður. Með auglýsingaherferð Bílaoutlet virðist sem kaupendur láti plata sig í kaup miðað við þá miklu afslætti sem þar eru boðnir," segir Þröstur að lokum. Enn sem komið er hefur ekki náðst í fyrirsvarsmenn Ingvars Helgasonar eða Bifreiða og landbúnaðarvéla.
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Tugþúsundir mótmæltu ICE Erlent Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Sjá meira