Fjölmargar fregnir af uppsögnum úti á landi 29. október 2008 16:31 MYND/GVA
Þær berast ört fréttirnar af uppsögnum víða á landinu þessa dagana. Á vef stéttarfélagsins Bárunnar á Suðurlandi kemur fram að samkvæmt heimildum félagsins hafi tvö fyrirtæki í byggingaiðnaði á Selfossi ákveðið að segja öllu sínu starfsfólki upp störfum. Stórt verslunarfyrirtæki hefur sömuleiðis ákveðið að segja upp fjölda starfsmanna. Í báðum tilvikum er um hópuppsögn að ræða eða um 40 manns. Var ákvörðunin tekin eftir stýrivaxtahækkun Seðlabankans í gær. Þá hafa fleiri fyrirtæki á félagssvæði Bárunnar tilkynnt um fækkun fólks. Flestir þeirra félagsmanna sem nú lenda í uppsögnum hafa aðeins áunnið sér eins mánaðar uppsagnafrest og gerir félagið ráð fyrir að allt að 50 manns missi vinnuna um þessi mánaðarmót en sú tala getur auðveldlega hækkað. „Fyrirtækin lifa nú í voninni um að það byrti til áður en uppsagnirnar koma til framkvæmda þó útlitið sé í raun skelfilegt," segir á vef Bárunnar sem krefst mótvægisaðgerða af hálfu ríkisvaldsins. Mánaðamótin blóðug Á vef Verkalýðsfélags Akraness kemur enn fremur fram að mánaðamótin verði blóðug fyri verkafólk, iðnaðarmenn og skrifstofufólk. Samkvæmt upplýsingum félagsins hefur á fimmta tug verkamanna, iðnaðarmanna og skrifstofumanna verið sagt upp í þessari viku á Akranesi. Flestir þeirra sem sagt hefur verið upp eru með eins mánaðar uppsagnarfrest þannig að síðasti starfsdagur flestra verður 30. nóvember. „Nánast allar þessar uppsagnir tengjast starfsemi í byggingariðnaði og er óhætt að segja að byggingarmarkaðurinn sé nánast helfrosinn og því miður ber formaður félagsins verulegan kvíðboga fyrir því að mun fleiri uppsagnir eigi eftir að líta dagsins ljós áður en kemur að mánaðarmótum," segir á vef Verkalýðsfélagsins. Þar er einnig kallað eftir aðgerðum stjórnvalda. „Það er deginum ljósara að íslensk stjórnvöld verða að koma íslenskum launþegum og heimilum landsins til hjálpar og það tafarlaust ef ekki á verulega illa að fara fyrir íslenskum heimilum," segir á vef Verkalýðsfélags Akraness.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Fleiri fréttir Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Sjá meira