Vandræðaganginum verður að linna 11. september 2008 22:07
Vandræðaganginum varðandi áfangaheimili borgarinnar verður að linna, sagði Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, í bókun á borgarráðsfundi í dag. Þar var fjallað um þá ákvörðun velferðarráðs frá því í síðasta mánuði að hætta viðræðum við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun um rekstur búsetuúrræðis fyrir einstaklinga sem eru að ná sér eftir vímuefnameðferð og hefja viðræður við aðra aðila sem sóttu um að sinna úrræðinu. Fyrirhugað var að opna í haust áfangaheimili í Hólavaði í Norðlingaholti á vegum Heilsuverndarstöðvarinnar. Vísir greindi frá því í júlí að eigandi raðhúsalengjunnar við Hólavað var lýstur gjaldþrota í apríl. Einn kröfuhafa leysti eignir fyrirtækisins til sín. Svandís lét bóka að þann 7. ágúst hefði borgarráðsfulltrú Vinstri grænna lagt til að að viðræðum við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun yrði hætt og teknar upp viðræður við SÁÁ um að taka úrræðið að sér. Tillögunni hefði verið vísað frá borgarráði til umsagnar velferðarráðs. Sú umsögn hefði ekki enn borist. ,,Hér er lögð fram tillaga um að hætta viðræðum við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun en jafnframt að hefja viðræður við alla sem áður hafa komið að málinu og þar með talið þá aðila sem verið er að hætta viðræðum við. Af þessum sökum situr borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna hjá við afgreiðsluna en væntir þess jafnframt að málið sem þolir enga bið sé loks komið í þann farveg að viðunandi lausn fáist fyrir þann hóp sem um ræðir. Vandræðaganginum verður að linna," sagði borgarfulltrúi Vinstri - grænna. Borgarráðsfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks létu þá bóka að mikilvægt væri að ljúka mállinu enda hafi velferðarráð nú sett málið í farsælan farveg með því að hefja á jafnræðisgrundvelli viðræður við þá aðila sem sótt hafa um að sinna þessum verkefnum. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans og fyrrverandi borgarstjóri, blandaði sér einnig í umræðuna og sagði alvarlegt mál að málið væri aftur komið á byrjunarreit. ,,Ég gagnrýni flaustursleg vinnubrögð og samráðsleysi formanns velferðarráðs sem er ein meginorsök þess að þetta þýðingarmikla mál hefur lent í miklum ógöngum," sagði Ólafur.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira