Landsframleiðsla eykst um fimm prósent milli ára 11. september 2008 09:10 MYND/GVA
Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um fimm prósent að raungildi á öðrum fjórðungi ársins í samanburðui við sama fjórðung í fyrra. Þetta sýna nýjar tölur Hagstofunnar. Þar segir einnig að á sama tíma megi ætla að þjóðarútgjöld hafi dregist saman um átta prósent þar sem einkaneysla dróst saman um rösklega þrjú prósent og fjárfesting um rúman fjórðung. Samneyslan jókst hins vegar um tæp prósent. Glögg merki þess að álframleiðsla Fjarðaáls sé komin inn Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar jókst útflutningur um fjórðung á tímabilinu en innflutningur dróst saman um 12 prósent. Þessi þróun veldur því að verulega dró úr halla á vöru- og þjónustuviðskiptum samanborið við annan ársfjórðung 2007 og skýrir þessi mikli bati vöxt landsframleiðslunnar á sama tíma og þjóðarútgjöld dragast saman. Enn fremur segir Hagstofan að landsframleiðslan á fyrsta og einkanlega á öðrum ársfjórðungi þessa árs beri þess glögg merki að álframleiðsla Fjarðaáls komi nú inn. Stækkun Norðuráls hafi einnig sitt að segja. „Afar lauslega má áætla að þessi framleiðsluaukning auki hagvöxt á 2. fjórðungi um rösk 2% og um ½ til 1% á 1. fjórðungi," segir á vef Hagstofunnar. Landsframleiðslan jókst um fimm prósent í fyrra Hagstofan birtir einnig endurskoðaðar tölur um landsframleiðslu fyrir allt árið 2007. Fram kemur meðal annars að landsframleiðslan á árinu 2007 varð 1.293 milljarðar króna og jókst að raungildi um fimm prósent frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 4,4 prósent vaxtar á árinu 2006. „Vöxt landsframleiðslunnar á liðnu ári má öðru fremur rekja til verulegs vaxtar útflutnings og aukningar einkaneyslu. Á sama tíma dróst fjárfesting saman og einnig vöruinnflutningur. Þessi þróun er allt önnur en á undanförnum fjórum árum þegar hagvöxtur var drifinn áfram af einkaneyslu og fjárfestingu. Laun- og fjáreignatekjur frá útlöndum jukust meira en nam aukningu launa- og fjármagnsgjalda til útlanda. Þessi aukning og óbreytt viðskiptakjör leiddu til þess að þjóðartekjur jukust á árinu 2007 mun meira en landsframleiðslan eða um 7,8% samanborið við 1,6% vöxt árið áður," segir Hagstofan.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira