Guðmundur og köttur hans sluppu naumlega úr brunanum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 17. júní 2008 12:07 „
Mundi er mikið hraustmenni en það hlýtur að taka á alla að lenda í svona," sagði Hrafn Jökulsson, íbúi í Trékyllisvík í Árneshreppi, en þar brann íbúðarhús Guðmundar Þorsteinssonar, Finnbogastaðir, í gærmorgun. Guðmundur og köttur hans komust einir af. „Hann var inni þegar kviknaði í og eldurinn virðist hafa breiðst út geysilega hratt. Honum tókst að komast út en gat ekki bjargað hundunum sínum, Týru og Kollu, sem voru í kjallaranum," sagði Hrafn enn fremur. „Þetta kom upp í kjallara og flestir telja að kviknað hafi í út frá miðstöð þar. Árneshreppur er fámennasta sveitarfélag landsins og í öðru lagi afskekktasta sveit landsins. Það eru 100 kílómetrar suður til Hólmavíkur sem er stóra plássið í Strandasýslu. Auk þess er vegurinn ekki góður svo slökkvilið kom ekki hingað fyrr en allt var farið sem farið gat. En hér voru allir komnir sem vettlingi gátu valdið að reyna hið ómögulega," útskýrði Hrafn. Hann segir þetta ekki bara spurningu um að missa húsið og allt sitt, þarna hafi Guðmundur fæðst og fjölskylda hans búið á Finnbogastöðum í marga ættliði. „En þetta er líka mikið áfall fyrir þessa litlu byggð. Hér eru átta bæir og við megum ekki við að missa einn einasta þeirra í eyði," sagði Hrafn að lokum. Félag Árneshreppsbúa hefur opnað söfnunarreikning í Sparisjóði Strandamanna til styrktar Guðmundi. Reikningsnúmerið er 1161-26-001050 og kennitalan 451089-2509.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Sjá meira