Um 16.000 manns fögnuðu í Kópavogi 17. júní 2008 20:38 MYND/Þór Jónsson
Aldrei fyrr hafa jafnmargir komið saman á Rútstúni í Kópavogi 17. júní og í þetta sinn. Talið er að 16 þúsund manns hafi notið fjölskylduskemmtunarinnar, leiktækja, söng- og skemmtiatriða og þjóðhátíðarávarpa. Þetta segir í fréttatilkynningu frá bænum. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri sagði í ávarpi sínu að bjartsýni væri besti aflgjafi þjóðarinnar þegar á móti blési. „Efnahagsumverfið er sveigjanlegt og verður fljótt að ná fyrri styrk ef við sýnum fyrirhyggju. En þá dugir enginn bölmóður. Það má ekki tala ástandið niður eins og mér finnst ráðamenn þjóðarinnar hafa verið að gera," sagði Gunnar meðal annars. „Við verðum að nýta auðlindirnar okkar. Nýting og umhverfisvernd þurfa ekki að vera andstæður, þetta tvennt getur spilað saman, öfgar á báða vegu eru afleitar. Fiskveiðiaflinn hefur reynst hverfull en enn eru ýmsir möguleikar í virkjun vatnsafls og gufuafls. Fjármunir detta ekki af himnum ofan. Þeirra þarf að afla með skynsemi og fyrirhyggju og raunsæi." Gunnar I. Birgisson vék auk þess að breyttri samfélagsgerð. „Sjálfstæði íslensku þjóðarinnar fékkst ekki átakalaust og við skulum hafa hugfast að sjálfsstjórn er engan veginn sjálfgefin í þessari veröld okkar," sagði hann. „Nú flýr enginn Ísland eins og í þrengingunum í kringum aldamótin 1900 þegar þúsundir Íslendinga fluttust búferlum til Vesturheims. Nú flýr fólk hingað til okkar, fólk sem hefur reynt á eigin skinni að sjálfstæði og mannréttindi séu ekki sjálfsagðir hlutir."
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira