Innlent

Metaðsókn í skiptinemadvöl á Íslandi

Nanna Hlín skrifar
Frá gjörningnum á laugardaginn.
Frá gjörningnum á laugardaginn.

Metaðsókn er í skiptinemadvöl á Íslandi í ár á vegum alþjóðlegu skiptinemasamtakanna AFS. Þeim bráðvantar fjölskyldur fyrir hina nýju skiptinema og frömdu sjálfboðaliðar á vegum samtakanna gjörning á Austurvelli á laugardaginn til þess að vekja athygli á þörfinni.

Sjálfboðaliðarnir stilltu upp rúmi á Austurvelli og voru einnig með flugdreka með yfirskriftinni „Halló mamma, halló pabbi. Viltu veita mér húsaskjól í vetur?"

Snædís Ylfa Ólafsdóttir var ein af þeim sem stóð að gjörningnum og lá hún lungann úr deginum í rúminu góða á Austurvelli. „Þetta var mjög skemmtilegt og gekk að vonum framar, við fengum mjög góð viðbrögð" segir Snædís. „Margir héldu að ég væri að sóla mig á Austurvelli með rúm í staðinn fyrir að vera á grasinu sem gerði það að verkum að margir stöldruðu við og fengu þá upplýsingar um starfsemina okkar."

Að sögn Margrétar Lóu Jónsdóttur hjá AFS eru 48 krakkar búnir að sækja um skiptinemadvöl á Íslandi næsta vetur. „Krakkarnir koma víðsvegar úr heiminum en við höfum einnig fengið fjölmargar fyrirspurnir fyrir 2009. Til dæmis eru að koma skiptinemar frá Grænlandi, Kólumpíu og Japan," segir Margrét.

„Það hefur gengið svo vel með skiptinema sem koma hingað, þau hafa alveg verið að blómstra. Sum hafa tekið þátt í söngvakeppnum framhaldskólanna, Skólahreysti eða leikritum. Þau segja sjálf að hér séu miklu fleiri tækifæri en heima fyrir, meira að segja Bandaríkjamennirnir tala um Ísland sem land tækifæranna."

Margrét segir þau hafa fengið góð viðbrögð við gjörningnum. „Við erum komin með lista með fullt af nöfnum og umsóknir eru búnar að streyma inn. En betur má ef duga skal, okkur vantar svo margar fjölskyldur og fólk þarf tíma til að ákveða sig." segir Margrét.

Margrét segir að fólk þurfi að sjálfsögðu að taka að sér skiptinema að vel hugsuðu máli en hins vegar þurfi það ekki að tilheyra hinni hefðbundnu vísitölufjölskyldu til þess að fá skiptinema. „Það eru alls konar fjölskyldur sem geta tekið skiptinema að sér, það geta verið samkynhneigð pör eða bara einstaklingar, það sem mestu máli skiptir er að koma til dyranna eins og maður er klæddur,"

Að sögn Margrétar koma krakkarnir deginum fyrir Menningarnótt þannig að skammur tími er til stefnu fyrir AFS að fá fjölskyldur fyrir skiptinemana. Samtökin hvetja því alla sem áhuga hafa á að hafa samband við þau.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×