Metaðsókn í skiptinemadvöl á Íslandi Nanna Hlín skrifar 21. júlí 2008 12:22 Frá gjörningnum á laugardaginn.
Metaðsókn er í skiptinemadvöl á Íslandi í ár á vegum alþjóðlegu skiptinemasamtakanna AFS. Þeim bráðvantar fjölskyldur fyrir hina nýju skiptinema og frömdu sjálfboðaliðar á vegum samtakanna gjörning á Austurvelli á laugardaginn til þess að vekja athygli á þörfinni. Sjálfboðaliðarnir stilltu upp rúmi á Austurvelli og voru einnig með flugdreka með yfirskriftinni „Halló mamma, halló pabbi. Viltu veita mér húsaskjól í vetur?" Snædís Ylfa Ólafsdóttir var ein af þeim sem stóð að gjörningnum og lá hún lungann úr deginum í rúminu góða á Austurvelli. „Þetta var mjög skemmtilegt og gekk að vonum framar, við fengum mjög góð viðbrögð" segir Snædís. „Margir héldu að ég væri að sóla mig á Austurvelli með rúm í staðinn fyrir að vera á grasinu sem gerði það að verkum að margir stöldruðu við og fengu þá upplýsingar um starfsemina okkar." Að sögn Margrétar Lóu Jónsdóttur hjá AFS eru 48 krakkar búnir að sækja um skiptinemadvöl á Íslandi næsta vetur. „Krakkarnir koma víðsvegar úr heiminum en við höfum einnig fengið fjölmargar fyrirspurnir fyrir 2009. Til dæmis eru að koma skiptinemar frá Grænlandi, Kólumpíu og Japan," segir Margrét. „Það hefur gengið svo vel með skiptinema sem koma hingað, þau hafa alveg verið að blómstra. Sum hafa tekið þátt í söngvakeppnum framhaldskólanna, Skólahreysti eða leikritum. Þau segja sjálf að hér séu miklu fleiri tækifæri en heima fyrir, meira að segja Bandaríkjamennirnir tala um Ísland sem land tækifæranna." Margrét segir þau hafa fengið góð viðbrögð við gjörningnum. „Við erum komin með lista með fullt af nöfnum og umsóknir eru búnar að streyma inn. En betur má ef duga skal, okkur vantar svo margar fjölskyldur og fólk þarf tíma til að ákveða sig." segir Margrét. Margrét segir að fólk þurfi að sjálfsögðu að taka að sér skiptinema að vel hugsuðu máli en hins vegar þurfi það ekki að tilheyra hinni hefðbundnu vísitölufjölskyldu til þess að fá skiptinema. „Það eru alls konar fjölskyldur sem geta tekið skiptinema að sér, það geta verið samkynhneigð pör eða bara einstaklingar, það sem mestu máli skiptir er að koma til dyranna eins og maður er klæddur," Að sögn Margrétar koma krakkarnir deginum fyrir Menningarnótt þannig að skammur tími er til stefnu fyrir AFS að fá fjölskyldur fyrir skiptinemana. Samtökin hvetja því alla sem áhuga hafa á að hafa samband við þau.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira