Skortur á starfsfólki hjá 60 prósentum fyrirtækja 11. október 2007 13:18 MYND/Sigurður Jökull
Nærri sextíu prósent fyrirtækja segja að skortur sé á starfsfólki samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði í samstarfi við fjármálaráðuneytið, Seðlabankann og Samtök atvinnulífsins. Samkvæmt könnuninni telja 58 prósent forsvarsmanna fyrirtækja að skortur sé á starfsfólki í fyrirtækjum sínum en þetta hlutfall var 51 prósent í síðustu könnun sem gerð var í maí. Fram kemur í vefriti fjármálaráðuneytisins að mestur skortur sér á starfsfólki í sérhæfðri þjónustu, verslun og samgöngum, flutningum og ferðaþjónustu. Viðsnúningur hefur orðið hjá fyrirtækjum í fjármála- og tryggingastarfsemi en skorturinn hjá þeim hefur minnkað úr 71 prósenti í 33 prósent frá síðustu könnun. Þá leiðir könnunin í ljós að mun fleiri fyrirtæki telji nú að starfsmönnum muni fækka á næsta hálfa árinu. Könnun Gallup sýnir enn fremur að aðeins 4,2 prósent telja aðstæður í efnahagslífinu slæmar og eru það einkum fyrirtæki í sjávarútvegi sem telja ástandið slæmt. Bjartsýni um horfur í efnahagslífinu á næstu sex mánuðum virðist hins vegar hafa minnkað en áfram telja þó flestir að ástandið muni verða óbreytt, eða um 62 prósent svarenda. Könnunin var gerð á tímabilinu 24. ágúst til 16. september og svarhlutfall var um 63 prósent. Alls tók 231 fyrirtæki þátt í könnuninni að þessu sinni en í endanlegu úrtaki voru 369 fyrirtæki.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Sjá meira