Innlent

Tilefni til lögreglurannsóknar

Guðríður Arnardóttir.
Guðríður Arnardóttir. MYND/Anton

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir að tilefni sé til lögreglurannsóknar reynist það rétt að enn sé boðið upp á einkadans á Goldfinger í Kópavogi. Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag er enn hægt að kaupa sér einkadans á staðnum þrátt fyrir að það sé klárt lögbrot.

„Ef þetta er tilfellið er klárlega tilefni til lögreglurannsóknar," segir Guðríður. „Einkadans er bannaður og nektrardans raunar líka og því finnst mér tilefni til að kanna málið ítarlega. Mér finnst raunar að starfsemi af þessi tagi eigi einmitt að vera undir sérstaklega ströngu eftirliti lögreglu."

Guðríður segir sérstaklega mikilvægt að efla eftirlit í kjölfar þess að lögum hafi verið breytt eins og í þessu tilviki. „Ég veit ekki betur en lögreglan fylgist vel með í miðbænum um helgar og fylgi því eftir að reykingabannninu sé framfylgt. Það er engu minni ástæða til að fylgjast með stöðum á borð við Goldfinger."

„Mér finnst ekki óeðlilegt að lögreglan fylgi eftir fréttum fjölmiðla," segir Guðríður og bætir því við að fróðlegt verði að fylgjast með hvað gerist í málinu á næstu dögum. „Reynist þetta rétt er greinilega ástæða fyrir lögregluna að herða eftirlit sitt á stöðum á borð við þennan," segir Guðríður að lokum.


Tengdar fréttir

Lögreglan fylgist með veitingastöðum en vissi ekki af einkadansi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu heldur úti skipulögðu eftirliti með veitingastöðum á höfuðborgarsvæðinu en embættið eltir ekki fréttir fjölmiðla. Þetta segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri í samtali við Vísi þegar hann er spurður út í frétt Vísis þess efnis að einkadans sé enn stundaður á nektarstaðnum Goldfinger í Kópavogi þrátt fyrir að blátt bann liggi við því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×