Einstakt myndband með Mugison 4. maí 2007 13:39
Notendur Vísis geta nú séð hér einstakt myndband með Mugison þar sem hann tekur lag sitt Murr, Murr niður í fjöru. Mugison er næsti viðmælandi Jóns Ársæls í Sjálfstæðu fólki n.k sunnudag. Mugison heitir fullu nafni Örn Elías Guðmundsson en flestir þekkja hann sem Mugison. Jón Ársæll brá sér vestur á firði og hitti þennan ástsæla og viðkunnalega tónlistarmann á heimaslóðum hans í Súðavík. Þrátt fyrir stuttan feril þá hefur Mugison sungið sig rækilega inn í hjörtu landsmanna, með melódískum, frumlegum en umfram allt einlægum lögum sínum. Plötur hans hafa selst vel og fært honum Íslensku tónlistarverðlaunin, auk þess sem að hann er nú orðinn eitt eftirsóttasta kvikmyndatónskáld þjóðarinnar, eftir að hafa samið tónlist við kvikmyndir Baltasars Kormáks, A Little Trip To Heaven og Mýrina. Mugison hefur allt frá upphafi ferils síns verið tíðrætt um hversu mikinn innblástur Vestfirðirnir veita honum, en plötur sínar hefur hann tekið upp við afar frumstæðar en einstaklega lífræn skilyrði þar fyrir vestan, m.a. í Súðavíkurkirkju. Á síðustu árum hefur Mugison jafnframt lyft Grettistaki og komið Ísafirði rækilega á heimskort rokksins með því að setja á laggirnar og skipuleggja hina árlegu og mjög svo alþjóðlegu tónlistarhátíð Aldrei fór ég suður...
Mest lesið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira